Aron Steinn Ásbjarnarson spilar á saxófón, Örn Ýmir Arason á kontrabassa og Þorkell Helgi Sigfússon á gítar. Allir syngja þeir lagið. Þeir kalla sig fjögurra manna tríó og því varð nafnið Fjarkar fyrir valinu. Birkir Blær Ingólfsson gerir texta.
„Lagið heitir Jólainnkaupalistinn og segir af manni sem er kominn í blússandi jólagír, endasendist um borgina með neyslubrjálað æðiber í rassinum til að kaupa allt sem til þarf svo jólin verði fullkomin. En uppgötvar svo að allar þessar jólavörur skipta engu máli. Það sem honum þykir raunverulega jólalegt er að verja tíma með þeim sem hann elskar við kertaljós - sem kostar náttúrlega svo gott sem ekkert. Og það er fallegt,“ segir Birkir Blær, sem er höfundur textans.
Tríóið Fjarkar heldur eina jólahefð í heiðri - að semja og gefa út eitt jólalag á ári.
„Þetta er orðinn fastur liður af jólahaldinu, jafnheilagur og skötuboð og skreytt jólatré. Fyrir vikið hefur safnast upp fínasti katalógur af jólalögum sem nálgast má á Spotify. Og nú er þetta nýja lag að koma út. Tríóið Fjarkar er 50's doo wop spilsyngjandi fjögurra manna tríó sem nýtur liðsinnis færustu tónlistarmanna Íslands við upptökur á litlum ilmandi jólalummum,“ útskýrir Birkir Blær.
Lagið Jólainnkaupalistinn má heyra í spilaranum hér fyrir neðan og textann má svo lesa neðst í fréttinni. Hægt er að hlusta á fleiri lög frá þeim á Spotify.
Jólainnkaupalistinn
Mig vantar sörur
mikið skraut
möndlugraut
óteljandi vörur
laufabrauð
feitan sauð
mandarínur
jólatré og fyllta pekingönd
og gjafabréf á sólarströnd
Ég kaupi jólin,
kemst í jólagír.
Ég ætlað sýna öllum hvar
jólaandinn býr!
Hvar fæ ég hvítöl
kyrrð og ró
og jólasnjó,
hvers kyns jólameðöl,
jólaljós
og jól í dós.
Ég fer í átta búðir til að
finna mistiltein
og leigi síðan jólasvein.
Ég kaupi jólin
kemst í jólagír.
Ég ætlað sýna öllum hvar
jólaandinn býr.
Ég gerði listann minn
af nákvæmni og alúð
en ég finn
að jólahátíðin
fæst víst ekki í búð.
Ég keypti jólin
en staðreyndin er sú
að það sem mér finnst jólalegt
er kertaljós og þú.