„Fólk sem fórnar öllu til að geta staðið í skilum og á svo varla fyrir mat“ Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 6. desember 2022 23:00 Ragnar bendir á að forsætisráðuneytið sé búið að vera með tvo starfshópa í gangi til að koma böndum á leigumarkaðinn og koma í veg fyrir að leiguverð sé keyrt upp umfram vísitölu. Það hafi ekki skilað sér. Vísir/vilhelm „Þetta er einfaldlega raunveruleikinn hjá fólki á leigumarkaði. Þetta er svo langt frá því að vera eina dæmið,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR í samtali við Vísi. Ragnar birti fyrr í dag færslu á facebook þar sem hann vakti athygli á dapurlegri stöðu 65 ára íslenskrar konu sem sér sig tilneydda til að segja upp samningi sínum við Ölmu leigufélag þar sem mánaðarleigan hefur rokið upp úr öllu valdi. Í færslunni segist Ragnar hafa fengið sláandi póst frá konunni, sem er sjúklingur og hefur ávallt staðið í skilum við leigufélagið. „Hún heitir Brynja og er 65 ára. Alma býður henni nýjan 12 mánaða leigusamning sem mun taka gildi frá byrjun febrúar á næsta ári með hækkun upp á 75.247kr. á mánuði miðað við vísitölu í nóvember, sem var 555,6 en er komin 560,9. Það þýðir að hækkunin sem henni stendur til boða verður 78.347kr. á mánuði frá og með febrúar næstkomandi en fer að öllum líkindum hækkandi fram að þeim tíma.“ Ragnar segir konuna nú vera nauðbeygða til að flytja út þar sem útilokað er fyrir hana að standa undir þessari hækkun. „Til að setja þetta í samhengi þyrftum við í verkalýðshreyfingunni að hækka laun um 133.000kr. á mánuði til að hún gæti staðið undir þessum kostnaðarauka. Og þá er allt annað eftir sem hækkað hefur langt úr hófi fram. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn hefur unnið hvað harðast gegn því að leigubremsu verði komið á til að sporna við gengdarlausri græðgi og því miskunnarleysi sem viðgengst á leigumarkaði.“ Ógeðfelld framkoma „Þetta er bara svo átakanlegt. Hún er 65 ára gömul og er að reyna að finna sér aðra íbúð því annars lendir hún bara á götunni. Hún stendur ekki undir þessum hækkunum, og hún gerði það varla fyrir,“ segir Ragnar í samtali við Vísi fyrr í kvöld. „Alltaf þegar maður heldur að það sé að nást einhver árangur þá er það skotið niður, annaðhvort af stjórnvöldum eða Sjálfstæðisflokknum. Eða þá að það koma inn nýir eigendur inn í svona félög sem ætla sér síðan að nota þetta eins og hverja aðra braskfjárfestingu, þar sem verið er að spila með líf fólks. Þetta er ekki boðlegt í þessu ríka og oft ágæta samfélagi sem við búum í.“ Ragnar segist hafa fengið send fleiri dæmi frá leigjendum sem standa frammi fyrir svipuðum hækkunum og konan sem um ræðir. „Allt er þetta fólk sem fórnar öllu til að geta staðið í skilum og á svo varla fyrir mat. Svo fá þau þetta yfir sig. Ég er bara verulega hugsi yfir því hvernig samfélag þetta er sem við búum í. Þetta er svo ógeðfellt.“ Ragnar bendir á að forsætisráðuneytið sé búið að vera með tvo starfshópa í gangi til að koma böndum á leigumarkaðinn og koma í veg fyrir að leiguverð sé keyrt upp umfram vísitölu. Það hafi ekki skilað sér. „Forsætisráðherra verður einfaldlega að svara því hversu langt þetta á að fá að ganga. Stjórnvöld geta ekki vikið sér endalaust undan ábyrgð. Fólki er misboðið og það er ekki að ástæðulausu. Það verður að koma meiri stuðningur til þessara hópa og setja lög sem koma í veg fyrir þetta.“ Hér má sjá færslu Ragnars í heild sinni. Facebook færsla Ragnars Ég fékk póst frá leigutaka hjá Ölmu leigufélagi sem er vægast sagt sláandi. Hún heitir Brynja og er 65 ára. Alma býður henni nýjan 12 mánaða leigusamning sem mun taka gildi frá byrjun febrúar á næsta ári með hækkun upp á 75.247kr. á mánuði miðað við vísitölu í nóvember, sem var 555,6 en er komin 560,9. Það þýðir að hækkunin sem henni stendur til boða verður 78.347kr. á mánuði frá og með febrúar næstkomandi en fer að öllum líkindum hækkandi fram að þeim tíma. Ég ræddi við Brynju seinnipartinn í dag og var samtalið og saga hennar sláandi en því miður ekki einsdæmi. Ég fékk góðfúslegt leyfi hennar til að birta þetta þar sem hún er nauðbeygð til að flytja út þar sem útilokað er fyrir hana að standa undir þessari hækkun. Brynja er sjúklingur en hefur ávalt staðið í skilum við leigufélagið eins og flestir gera með því að borga leiguna fyrst og lifa á hafragraut megin hluta mánaðarins. Til að setja þetta í samhengi þyrftum við í verkalýðshreyfingunni að hækka laun um 133.000kr. á mánuði til að hún gæti staðið undir þessum kostnaðarauka. Og þá er allt annað eftir sem hækkað hefur langt úr hófi fram. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn hefur unnið hvað harðast gegn því að leigubremsu verði komið á til að sporna við gengdarlausri græðgi og því miskunnarleysi sem viðgengst á leigumarkaði. Sjá samskipti leigufélagsins við Brynju sem fékk heldur dapurlega jólagjöf frá leigufélaginu eins og hún orðar það sjálf: Sæl Brynja, Nú líður að endurnýjun leigusamnings þíns vegna Hverfisgötu 59, íbúð 102. Núverandi leigusamningur rennur út 31.01.2023 næst komandi. Við viljum endilega heyra frá þér hvort þú hafir hug á því að endurnýja leigusamninginn þinn frá 01.02.2023. Við getum boðið þér endurnýjun á leigusamningi með grunnleiguverð kr. 325.000.- og upphafsvísitölu 555,6. Athugaðu að upphafsvísitala samnings miðast við nóvember mánuð 2022. Greiðsla skv. núverandi leigusamningi í nóvember er kr. 249.753,- Við bjóðum upp á tímabundna leigusamninga til 12 mánaða eða langtímasamninga til allt að 60 mánaða. Innheimt er álag ofan á grunnleiguverð langtímasamninga sem ákvarðast af lengd samnings. Meðfylgjandi er skjal með frekari útskýringum. Við biðjum þig að láta okkur vita sem fyrst eða í síðasta lagi 01.01.2023 hvort þú komir til með að endurnýja samninginn þinn. Vertu endilega í sambandi við okkur ef þú hefur frekari spurningar eða ef eitthvað er óljóst. Hlökkum til að heyra frá þér. Með kveðju, Starfsfólk Ölmu Ég velti því stundum fyrir mér hvert í fjandanum við erum komin sem samfélag. Leigumarkaður Húsnæðismál Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Fleiri fréttir Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Sjá meira
Facebook færsla Ragnars Ég fékk póst frá leigutaka hjá Ölmu leigufélagi sem er vægast sagt sláandi. Hún heitir Brynja og er 65 ára. Alma býður henni nýjan 12 mánaða leigusamning sem mun taka gildi frá byrjun febrúar á næsta ári með hækkun upp á 75.247kr. á mánuði miðað við vísitölu í nóvember, sem var 555,6 en er komin 560,9. Það þýðir að hækkunin sem henni stendur til boða verður 78.347kr. á mánuði frá og með febrúar næstkomandi en fer að öllum líkindum hækkandi fram að þeim tíma. Ég ræddi við Brynju seinnipartinn í dag og var samtalið og saga hennar sláandi en því miður ekki einsdæmi. Ég fékk góðfúslegt leyfi hennar til að birta þetta þar sem hún er nauðbeygð til að flytja út þar sem útilokað er fyrir hana að standa undir þessari hækkun. Brynja er sjúklingur en hefur ávalt staðið í skilum við leigufélagið eins og flestir gera með því að borga leiguna fyrst og lifa á hafragraut megin hluta mánaðarins. Til að setja þetta í samhengi þyrftum við í verkalýðshreyfingunni að hækka laun um 133.000kr. á mánuði til að hún gæti staðið undir þessum kostnaðarauka. Og þá er allt annað eftir sem hækkað hefur langt úr hófi fram. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að Sjálfstæðisflokkurinn hefur unnið hvað harðast gegn því að leigubremsu verði komið á til að sporna við gengdarlausri græðgi og því miskunnarleysi sem viðgengst á leigumarkaði. Sjá samskipti leigufélagsins við Brynju sem fékk heldur dapurlega jólagjöf frá leigufélaginu eins og hún orðar það sjálf: Sæl Brynja, Nú líður að endurnýjun leigusamnings þíns vegna Hverfisgötu 59, íbúð 102. Núverandi leigusamningur rennur út 31.01.2023 næst komandi. Við viljum endilega heyra frá þér hvort þú hafir hug á því að endurnýja leigusamninginn þinn frá 01.02.2023. Við getum boðið þér endurnýjun á leigusamningi með grunnleiguverð kr. 325.000.- og upphafsvísitölu 555,6. Athugaðu að upphafsvísitala samnings miðast við nóvember mánuð 2022. Greiðsla skv. núverandi leigusamningi í nóvember er kr. 249.753,- Við bjóðum upp á tímabundna leigusamninga til 12 mánaða eða langtímasamninga til allt að 60 mánaða. Innheimt er álag ofan á grunnleiguverð langtímasamninga sem ákvarðast af lengd samnings. Meðfylgjandi er skjal með frekari útskýringum. Við biðjum þig að láta okkur vita sem fyrst eða í síðasta lagi 01.01.2023 hvort þú komir til með að endurnýja samninginn þinn. Vertu endilega í sambandi við okkur ef þú hefur frekari spurningar eða ef eitthvað er óljóst. Hlökkum til að heyra frá þér. Með kveðju, Starfsfólk Ölmu Ég velti því stundum fyrir mér hvert í fjandanum við erum komin sem samfélag.
Leigumarkaður Húsnæðismál Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Fleiri fréttir Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Sjá meira