Sveiflur á markaði ekki „jafn ýktar“ núna og í fyrstu uppfærslu FTSE Russell
![„Þessi vístölustilling gekk að mörgu leyti betur fyrir sig en sú fyrsta þar sem verðbreytingar voru ekki eins ýktar núna,“ segir sérfræðingur á markaði.](https://www.visir.is/i/2F6DF974C9C5822E201927F373D586B9198DA21506BD9E3601465B095609BE69_713x0.jpg)
Önnur uppfærsla íslenska hlutabréfamarkaðarins í flokk nýmarkaðsríkja hjá FTSE Russell gekk betur á föstudaginn en sú fyrsta hinn 16. september. Talsvert færri erlendir fjárfestar seldu hlutabréf sín nú en þá. Þetta herma heimildir Innherja. Flest félögin sem voru í vísitölumenginu lækkuðu engu að síður á föstudaginn. Möguleg má það rekja til þess að erlendir markaðir hafa farið lækkandi að undanförnu og íslensk hlutabréf hafa fylgt þeirri þróun, að mati viðmælanda Innherja.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/B81B0E13067F87BBC531576884E7A2E63D27483674A02CD4D05FEE06F5137737_308x200.jpg)
Seldi gjaldeyri til að mæta útflæði við útgöngu erlendra vogunarsjóða
Seðlabanki Íslands greip inn á gjaldeyrismarkaði í upphafi vikunnar með einni umsvifamestu sölu sinni á gjaldeyri á þessu ári. Þetta var í annað sinn í þessum mánuði sem bankinn stóð að gjaldeyrissölu á markaði en áður hafði bankinn ekki beitt gjaldeyrisinngripum í meira en þrjá mánuði.