Toney kærður fyrir 30 brot til viðbótar Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 20. desember 2022 21:30 Ivan Toney er í vandræðum. Jacques Feeney/Getty Images Ivan Toney, framherji Brentford í ensku úrvalsdeildinni, var á dögunum kærður fyrir fjölda brota á veðmálareglum deildarinnar. Nú hafa 30 brot bæst við kæruna.
Í aðdraganda HM í Katar var mikið rætt og ritað um Ivan Toney og möguleikann á því að hann yrði valinn í enska landsliðshópinn sem myndi fara. Á endanum var hann ekki valinn og skömmu síðar var hann kærður af enska knattspyrnusambandinu. Hinn 26 ára gamli Toney var ákærður fyrir að hafa brotið veðmálareglur sambandsins alls 232 sinnum á undanförnum árum. Nú hafa 30 brot til viðbótar bæst við ákæruna og er því um alls 262 brot að ræða, samkvæmt kærunni. „Ivan hefur til miðvikudagsins 4. janúar 2023 til að svara,“ segir í yfirlýsingu frá enska knattspyrnusambandinu. BREAKING Ivan Toney has been charged with a further 30 breaches of FA betting rules.Those are in addition to the 232 alleged breaches the FA charged him with prior to the World Cup. This brings the total to 262 breaches. pic.twitter.com/dD1WvZtBn6— Football Daily (@footballdaily) December 20, 2022 Toney er sannkallaður lykilmaður hjá Brentford og hefur skorað 10 mörk og gefið 2 stoðsendingar í 14 leikjum í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni. Verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér langt bann. Því til sönnunar má benda á tíu vikna bannið sem Kieran Trippier fékk fyrir að veita upplýsingar um vistaskipti sín frá Tottenham Hotspur til Atlético Madríd í júlí 2019. Þá fékk Trippier sekt upp á 70 þúsund pund.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Einar mölbraut hendurnar á hlaupahjóli en átti magnað EM Sport Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Fótbolti Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Fótbolti Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ Sport Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Fótbolti Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Enski boltinn Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Körfubolti „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Enski boltinn Fleiri fréttir Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels The Weeknd um að kenna að Arsenal og City mætast ekki á Wembley Ætlaði bara að vinna systur sína í Fantasy en vann svo alla í heiminum „Engar afsakanir“ hjá Carrick eftir tapið á móti Amorim Ruben Amorim fagnaði sigri á móti Manchester United Orri Steinn byrjaði í tapleik gegn Chelsea Romero yfirgefur Tottenham og fer til Atlético Madrid Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Sjá meira