Héldu áfram að selja í verðbréfasjóðum þrátt fyrir hækkanir á mörkuðum
![„Þrátt fyrir áframhaldandi óvissu á mörkuðum eru góðir hlutir að gerast. Áhugi á skráningum hefur aldrei verið meiri og við eygjum aukna þátttöku erlendra fjárfesta og einstaklinga,“ segir forstöðumaður viðskiptatengsla hjá Kauphöllinni.](https://www.visir.is/i/B0929C5AAA7E5FA28F3960EDF36E5028D83209E3620E8E0900409148CE349331_713x0.jpg)
Hreinar innlausnir fjárfesta í innlendum verðbréfasjóðum á fyrstu ellefu mánuðum ársins 2022 nema samanlagt yfir 37 milljarðar króna á tímabili sem hefur einkennst af mikilli óvissu og hræringum á mörkuðum um allan heim. Ekkert lát var á útflæðinu í nóvember, meðal annars í hlutabréfasjóðum, sem hafa skroppið saman um 30 milljarða frá því í ársbyrjun 2022.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/76C52D968E160A8CE80067FCFAE02EDBE090787E0507495C15A7708DAEFCEAEB_308x200.jpg)
Innlausnir í hlutabréfasjóðum drifnar áfram af útflæði fjárfesta hjá Akta
Meirihluti stærstu hlutabréfasjóða landsins hafa horft upp á hreint útflæði fjármagns á árinu samhliða því að fjárfestar flýja áhættusamari eignir á tímum þegar óvissa og miklar verðlækkanir hafa einkennt hlutabréfamarkaði. Úttekt Innherja leiðir í ljós að innlausnir á fyrri árshelmingi voru einkum drifnar áfram af sölu hlutabréfafjárfesta hjá stærsta sjóðnum í stýringu Akta.