Stjörnurnar skildu árið 2019 en þau giftu sig árið 2018. Samband þeirra var langt og stormasamt en þau kynntust fyrst árið 2009. Það var Cyrus sem sótti fyrst um skilnað og gekk hann endanlega í gegn árið 2020. Hemsworth byrjaði að hitta kærustu sína, Gabriellu Brooks, skömmu áður.
Það er eflaust þá engin tilviljun að lagið kom út í Los Angeles nokkrum klukkustundum fyrir afmæli Hemsworh á föstudag. Þegar lagið kom út var klukkan 11 í Sydney, en Hemsworth er Ástrali.
Fyrsta lagið á toppinn
Lagið Flowers hefur hlotið virkilega góð viðbrögð og komst í fyrsta sætið á heimslista Spotify og víðar. Þetta er fyrsta lag söngkonunnar sem nær í fyrsta sæti Spotify listans í Bandaríkjunum eins og hún sagði stolt frá á Instagram.
Miley Cyrus sjálf hefur ekki tjáð sig neitt um textann eða myndbandið við Flowers. Nýja platan hennar Endless Summer Vacation kemur út þann 10. mars.
Í dag er söngkonan að hitta trommarann Maxx Morando. Hún segist í laginu ekki hafa neina eftirsjá. US weekly bendir á að í textanum syngur hún meðal annars „Byggðum heimili og horfðum á það brenna“ en líkt og fjallað var um hér á Vísi brann einbýlishús þeirra í skógareldunum sem geisuðu í Kaliforníu árið 2018.
Samband þeirra fuðraði einnig upp svo textinn á vel við.

Get elskað mig betur en þú
Í laginu segir Cyrus „Ég vildi ekki fara frá þér.“ Hún hafi þó komist að því að hún væri hamingjusamari ein.
„Byrjaði að gráta en svo mundi ég. Ég get keypt handa sjálfri mér blóm. Skrifað nafnið mitt í sandinn. Talað við sjálfa mig klukkustundum saman. Sagt hluti sem þú skilur ekki.“
Þessi hluti lagsins virðist vera vísun í Bruno Mars lagið When I Was Your Man sem fyrrum eiginmaðurinn tileinkaði henni. Hún snýr laginu alveg á hvolf. Í lauslegri þýðingu:
„Ég get boðið mér út að dansa. Ég get haldið í mína eigin hönd. Já, ég get elskað mig betur en þú.“
Myndbandið við lagið Flowers má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Kunnugleg dansspor
Tiktok notendur hafa um helgina greint myndbandið við Flowers og sett fram alls konar samsæriskenningar. Telja margir að Cyrus sé að senda alls konar skilaboð til fyrrverandi með myndbandinu.
Á einum tímapunkti dansar hún um fallegt heimili í karlmanns jakkafötum. Einhverjir halda því fram að um sé að ræða jakkafötin sem leikarinn klæddist á Avengers frumsýningunni þegar hann á að hafa sagt henni að haga sér.
I just realized she is wearing Liam s suit from the avengers premiere where he told her to behave.. MILEY IS INSANE pic.twitter.com/bc2g3iQmg8
— (@loveIysadness) January 14, 2023
Á einumm stað í Flowers myndbandinu má sjá allavega sjá kunnuglega danstakta frá því að Cyrus dansaði í miðju viðtali á Vanity Fair viðburði og Hemsworth segir ósáttur:
„Við ætlum ekki að gera þetta hér.“
WAIT A MINUTE pic.twitter.com/YA76DVsz7T
— out of context hannah montana (@OCHannahMontana) January 4, 2023
Einhverjir aðdáendur hafa líka haldið því fram að húsið sem Flowers myndbandið var tekið upp í, hafi verið notað af Hemsworth til að hitta 14 aðrar konur á meðan þau voru enn gift. Ekkert slíkt slúður hefur þó fengist staðfest.
Julia Fox reacts to our tweet that Miley Cyrus Flowers video was filmed in a house that her ex Liam Hemsworth used to cheat on her:
— Pop Tingz (@ThePopTingz) January 14, 2023
14?! pic.twitter.com/2QO0VeOBUf