Hvassviðri, gular viðvaranir og önnur lægð á leiðinni Atli Ísleifsson skrifar 2. febrúar 2023 07:15 Það hefur bæst í snjóinn á höfuðborgarsvæðinu og er og snjóþekja eða hálkublettir á flestum leiðum í borginni. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir austan og suðaustan hvassviðri eða storm á landinu í dag. Það verður úrkoma um allt land og víða á formi slyddu eða snjókomu og hiti verður kringum frostmark. Gular viðvaranir hafa þegar tekið eða munu taka gildi á næstu klukkustundum um nær allt land og eru þær í gildi fram á kvöld eða nótt. Einungis höfuðborgarsvæðið er undanskilið hvað viðvaranir Veðurstofu varðar.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að sunnan- og suðvestanlands fari úrkoman yfir í rigningu á láglendi þegar líði á morguninn og hlýni á þeim slóðum. Lesa má um viðvaranir í gildi á vef Veðurstofunnar. „Það lægir síðan um tíma síðdegis á sunnanverðu landinu, en snýst síðan í allhvassa suðvestanátt með skúrum eða éljum. Heilt yfir má þó segja að það dragi úr vindi og úrkomu á landinu í kvöld og nótt og víða skaplegt veður í fyrramálið. Það stendur þó ekki lengi, því eftir hádegi á morgun gengur í suðaustan og sunnan hvassviðri eða storm með rigningu og hlýindum,“ segir á vef Veðurstofunnar. Það hefur bæst í snjóinn á höfuðborgarsvæðinu og er og snjóþekja eða hálkublettir á flestum leiðum í borginni. Sömu sögu er að segja af Suðurlandi þar sem er skafrenningur og hvassvirðri þótt enn sem komið er séu flestir vegir færir. Þó er lokað um Krýsuvík. Á Vesturlandi er Þungfært um Bröttubrekku og í Helgafellssveit og ófært á milli Grundarfjarðar og Ólafsvíkur en lokað er um Fróðárheiði. Þungfært og stórhríð er á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum. Víða eru fjallvegir ófærir og lítið ferðaveður. Annarstaðar á landinu er staðan svipuð og óvissustig víða í gildi sem þýðir að vegum gæti verið lokað með stuttum fyrirvara. Nánari upplýsingar er að finna á vef Vegagerðarinnar. Spákort fyrir klukkan 13.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Gengur í suðaustan og síðar sunnan 15-25 m/s, hvassast vestanlands. Víða rigning, talsverð úrkoma á sunnanverðu landinu. Hlýnar, hiti 3 til 9 stig síðdegis. Á laugardag: Suðvestan 13-20 og él, en þurrt norðaustan- og austanlands. Hiti um og undir frostmarki. Á sunnudag: Sunnan hvassviðri eða stormur með rigningu og hlýindum, en úrkomulítið norðaustantil á landinu. Á mánudag: Allhvöss suðvestanátt með éljum og frystir. Á þriðjudag: Suðvestan stormur með snjókomu eða éljum. Á miðvikudag: Líkur á að lægð fari yfir landið með breytilegri vindátt og hvössum vindi. Víða úrkoma og hiti kringum frostmark.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira