Suðvestanátt með éljum í dag og hvessir á morgun Atli Ísleifsson skrifar 6. febrúar 2023 07:13 Skörp skil á austurleið ganga yfir landið snemma á morgun, fara hratt yfir og eru á bak og burt seinnipartinn. Vísir/Vilhelm Reikna má með suðvestanátt með éljum í dag en björtu með köflum á norðaustanverðu landinu. Það mælist enn allt að tíu stiga hiti á Austfjörðum nú í morgunsárið en hitastig fer lækkandi í dag og verður í kringum frostmark seinnipartinn.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að skörp skil á austurleið gangi yfir landið snemma á morgun, fari hratt yfir og séu á bak og burt seinnipartinn. „Það hvessir verulega við þessi skil með stormi eða roki í stuttan tíma. Auk þess má búast við slyddu, snjókomu og jafnvel eldingum. Viðvörun er gefin út og folki er bent á að sýna varkárni og fylgjast vel með veðurspám. Síðar snýst í suðvestan hvassviðri og þá byrja él á nýan leik. Hiti verður víða um frostmark á morgun en nálægt skilunum hlýnar um tíma. Áframhaldandi suðvestanátt á miðvikudag og fimmtudag með éljum en yfirleitt bjart austanlands. Vægt frost um allt land. Svo kemur ný lægð á föstudag með snjókomu eða rigningu og þá hlýnar aftur,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Sunnan stormur með snjókomu eða slyddu, en snýst í suðvestan hvassviðri með éljum þegar líður á daginn. Hiti víða um eða undir frostmarki, en upp í 5 stig með suðurströndinni. Á miðvikudag: Minnkandi suðvestlæg átt og él, en yfirleitt bjart norðaustantil, 8-15 m/s seinni partinn. Frost 2 til 9 stig. Norðlægari um kvöldið og kólnar. Á fimmtudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 8-15 m/s og dálítil él, einkum vestantil. Kalt í veðri. Á föstudag: Gengur í stífa suðaustlæga átt. Víða snjókoma en síðar rigning sunnantil, sums staðar talsverð eða mikil úrkoma. Hvöss suðvestanátt þegar líður á daginn með skúrum. Frost 0 til 8 stig, en allt að 6 stiga hiti við suðurströndina. Á laugardag: Ákveðin sunnanátt og talsverð eða mikil rigning víða um land en þurrt að kalla norðaustantil. Hlýtt í veðri. Á sunnudag: Útlit fyrir suðvestlæga átt með éljum, hiti um eða undir frostmarki.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Sjá meira