Grunaður um ítrekuð brot og saksóknari skoðar líkur á sakfellingu Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 8. febrúar 2023 08:01 Gylfi hefur undanfarið eitt og hálft ár verið í farbanni í Bretlandi. Vísir/Vilhelm Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er grunaður um að hafa framið ítrekuð kynferðisbrot. Saksóknaraembætti bresku krúnunnar í Manchester hefur nú rannsóknargögn lögreglu til skoðunar og þarf að leggja mat á það hvort sönnunargögnin séu líkleg til þess að leiða til sakfellingar.
Þetta kemur fram í skriflegu svari embættisins við fyrirspurn fréttastofu. Fréttablaðið greindi frá því um helgina að rannsókn lögreglunnar í Manchester í máli Gylfa væri lokið og það komið á borð saksóknara. Embættið vildi ekki veita fréttastofu frekari upplýsingar að svo stöddu. Þá vildi embættið ekki gefa upp neins konar tímalínu um hvenær ákvörðun um hvort Gylfi verður ákærður mun liggja fyrir. Gylfi var handtekinn á heimili sínu í Manchester 16. júlí 2021. Gylfi var þá liðsmaður Everton og kom fram í breskum fjölmiðlum nokkrum dögum síðar að 31 árs gamall leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar hafi verið handtekinn, grunaður um kynferðisbrot gegn ólögráða einstaklingi, og síðar sleppt gegn tryggingu. Tekinn af leikmannalistum Gylfi var nafngreindur í íslenskum fjölmiðlum 20. júlí 2021. Degi síðar birtust fréttir þess efnis að Gylfi harðneitaði þeim ásökunum sem bornar eru á hann. Þann 14. ágúst sama ár var greint frá því að Gylfi yrði áfram laus gegn tryggingu og hann settur í farbann. Í lok ágústmánaðar var tilkynnt að Gylfi myndi ekki spila með íslenska landsliðinu í knattspyrnu í undankeppni HM í Katar. Tveimur vikum síðar var leikmannahópur Everton tilkynntur og Gylfi var ekki þar á meðal. Í október var farbannið svo framlengt til 16. janúar 2022. Þann 15. janúar 2022 birtist frétt á Vísi að rannsókn á máli Gylfa væri á lokametrunum var þar vísað til þess að í það skipti var farbannið yfir Gylfa aðeins framlengt um nokkra daga. Þegar uppi var staðið reyndist rannsóknin enn í fullum gangi og farbannið framlengt um þrjá mánuði til viðbótar. Orðaður við Tyrkland Síðastliðið vor var svo greint frá því að Gylfi væri meðal þeirra leikmanna sem Everton vildi losna við af launaskrá. Gylfi var einn þriggja sem félagið vildi losna við, allir með himinhá laun eða 250 þúsund pund á viku sín á milli. Það nemur 43 milljónum íslenskra króna sem leikmennirnir skiptu milli sín vikulega. Farbannið var framlengt enn meir og í júní í fyrra lá það fyrir að samningur Gylfa hjá Everton yrði ekki framlengdur. Um svipað leiti var Gylfi orðaður við tyrkneska félagið Galatasaray og sögusagnir um að það hafi boðið honum 280 milljónir króna í laun á ári. Ekkert reyndist svo til í þessum sögusögnum. Í júlí sást Gylfi í fyrsta sinn á almannafæri síðan hann var handtekinn. Hann mætti á leik Íslands og Ítalíu á Evrópumóti í fótbolta sem fór fram í Manchester. Þar fékk hann að fylgjast með Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur, frænku sinni, sem spilar með íslenska landsliðinu. Fjölskyldan segir brotið á mannréttindum Gylfa Síðan síðasta sumar hefur lítið fengist upp gefið um stöðu mála hjá Gylfa. Lögregla hefur ekki viljað svara fyrirspurnum íslenskra fréttastofa og í október kallaði fjölskylda hans eftir aðstoð. Þetta gerði faðir Gylfa, Sigurður Aðalsteinsson, í viðtali á Vísi. Þar greindi hann meðal annars frá að sótt hafi verið um flutning á lögheimili Gylfa frá Bretlandi til Íslands. Fjölskylda hans hafi einnig leitað hjálpar hjá utanríkisráðuneytinu sem hefði ekki viljað beita þrýstingi í málinu. „Það er alltaf reynt að framlengja farbannið. Maðurinn var tekinn í yfirheyrslu. Síðan hefur ekkert gerst,“ sagði Sigurður í samtali við fréttastofu í haust. „Þetta er orðið að mannréttindabroti.“ Síðan þá hefur Njáll Trausti Friðbertsson, 1. varaformaður utanríkismálanefndar Alþingis, sagst ætla að ræða mál Gylfa Þórs á fundi nefndarinnar. Þó gæti reynst erfitt fyrir íslensk stjórnvöld að reyna að beita sér fyrir máli sem sé til meðferðar í ríki, sem er ein af okkar nánustu vinaþjóðum. Málið er nú, eins og áður segir, komið á borð saksóknara krúnunnar í Bretlandi og því ekkert annað hægt að gera en bíða og sjá hvort hann verði ákærður eða ekki.
Fótbolti Bretland England Íslendingar erlendis Mál Gylfa Þórs Sigurðssonar Tengdar fréttir Rannsókn á máli Gylfa Þórs lokið Rannsókn lögreglunnar í Manchester á máli knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar er lokið. Málið er nú komið inn á borð saksóknaraembættis bresku krúnunnar. Það er í höndum þess embættis hvort ákært verði í málinu eða það falli niður. 5. febrúar 2023 09:47 Alexandra Helga kaupir í Ármúla og Von fer í Síðumúla Alexandra Helga Ívarsdóttir hefur keypt verslunarhúsnæði í Ármúla 40 fyrir 260 milljónir króna. Þar er verslunin Von staðsett en hún verður flutt í Síðumúla á næstunni. 2. febrúar 2023 13:21 Mánuður síðan farbann Gylfa Þórs rann út: Lögregla svarar ekki fyrirspurnum Í dag er sléttur mánuður síðan farbann knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar rann út í Bretlandi. Hann hafði verið í farbanni í Englandi síðan hann var handtekinn þann 16. júlí 2021 vegna gruns um kynferðisbrot gegn ungmenni. 16. ágúst 2022 10:01 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjana í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Sjá meira
Rannsókn á máli Gylfa Þórs lokið Rannsókn lögreglunnar í Manchester á máli knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar er lokið. Málið er nú komið inn á borð saksóknaraembættis bresku krúnunnar. Það er í höndum þess embættis hvort ákært verði í málinu eða það falli niður. 5. febrúar 2023 09:47
Alexandra Helga kaupir í Ármúla og Von fer í Síðumúla Alexandra Helga Ívarsdóttir hefur keypt verslunarhúsnæði í Ármúla 40 fyrir 260 milljónir króna. Þar er verslunin Von staðsett en hún verður flutt í Síðumúla á næstunni. 2. febrúar 2023 13:21
Mánuður síðan farbann Gylfa Þórs rann út: Lögregla svarar ekki fyrirspurnum Í dag er sléttur mánuður síðan farbann knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar rann út í Bretlandi. Hann hafði verið í farbanni í Englandi síðan hann var handtekinn þann 16. júlí 2021 vegna gruns um kynferðisbrot gegn ungmenni. 16. ágúst 2022 10:01