Dortmund og Benfica með frumkvæðið fyrir seinni leikina Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. febrúar 2023 22:08 Jude Bellingham og Emre Can fagna í leiknum í kvöld. Vísir/Getty Borussia Dortmund vann 1-0 sigur á Chelsea í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Seinni leikurinn fer fram á Stamford Bridge eftir þrjár vikur. Chelsea var sterkara liðið í fyrri hálfleik og skoruðu mark sem dæmt var af vegna hendi á Thiago Silva. Staðan í hálfleik var 0-0 en á 63.mínútu skoraði hinn ungi Karim Adeyemi og kom Dortmund í 1-0 þegar hann stakk Enzo Fernandez af og fór framhjá Kepa Arrizabalaga í markinu áður en hann skoraði. Chelsea reyndi hvað það gat að jafna metin en allt kom fyrir ekki. Dortmund fagnaði 1-0 sigri og fer með það forskot í síðari leikinn sem verður spilaður á Stamford Bridge þriðjudaginn 7.mars. Benfica í góðri stöðu Í Belgíu tók Club Brugge á móti Benfica í hinum leik kvöldsins. Belgarnir komu mörgum á óvart í riðlakeppninni og tryggðu sér áfram úr sínum riðli en skildu lið Bayer Leverkusen og Atletico Madrid eftir með sárt ennið. Belgarnir lentu þó í vandræðum í kvöld. Eftir markalausan fyrri hálfleik skoraði Joao Mario úr víti fyrir Benfica á 51.mínútu og David Neres tvöfaldaði forystuna þegar hann skoraði gríðarlega mikilvægt mark tveimur mínútum fyrir leikslok. Benfica fer því með 2-0 stöðu í síðari leikinn á heimavelli og það gæti reynst þrautin þyngri fyrir belgíska liðið að vinna þann mun upp. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti