Skúrir í flestum landshlutum og rauðar tölur Atli Ísleifsson skrifar 23. febrúar 2023 07:04 Reikna má með að hiti á landinu verði víða á bilinu tvö til sjö stig. Milt verður í veðri. Vísir/Vilhelm Veðurstofan reiknar með vestlægri átt í dag þar sem víða verður strekkingur. Spáð er skúrum í flestum landshlutum en sumsstaðar slydduéljum eða éljum um norðanvert landið og þurrt suðaustanlands.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði fremur milt í veðri þar sem hiti verður á bilinu tvö til sjö stig. „Hægari norðlæg átt, styttir upp og frystir í kvöld en yfirleitt frostlaust með suðurströndinni. Hæg suðlæg átt og hlýnar á morgun, fyrst vestantil á landinu með rigningu á köflum á þeim slóðum. Gengur í sunnan hvassviðri með samfelldari rigingu seint annað kvöld og slær jafnvel í storm á stöku stað aðra nótt, en hægari vindur og úrkomulítið um austanvert landið. Hlýnar um land allt, hiti 3 til 8 stig. Um helgina er svo útlit fyrir áframhaldandi suðlægum áttum með vætu á köflum sunnan- og vestantil á landinu, annars þurrt, og hlýindi um land allt,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 13 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Sunnan og suðvestan 5-13 m/s og dálítil væta með köflum, en þurrt austantil á landinu. Hiti 0 til 7 stig, kaldast í innsveitum á Austurlandi. Hvessir um vestanvert landið seint um kvöldið. Á laugardag: Suðlæg átt 13-20 m/s, hvassast vestantil. Víða rigning en þurrt um norðaustanvert landið. Hiti 3 til 9 stig. Á sunnudag og mánudag: Suðlæg átt, víða 10-15 m/s, og væta með köflum en yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 3 til 8 stig. Á þriðjudag: Suðvestlæg átt og víða væta um vestanvert landið en bjart með köflum eystra. Kólnar heldur í veðri. Á miðvikudag: Útlit fyrir vestlæga átt. Skúrir eða él en úrkomulítið um austanvert landið. Hiti um og yfir frostmarki.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira