Reykjanesbraut breikkuð milli Hafnarfjarðar og Hvassahrauns Kristján Már Unnarsson skrifar 6. mars 2023 22:22 Svona mun kafli Reykjanesbrautar við Straumsvík líta út eftir breikkun. Vegagerðin Breikkun Reykjanesbrautar á milli Hafnarfjarðar og Hvassahrauns hefur verið boðin út og eru verklok áformuð eftir þrjú ár. Jafnframt hefur Vegagerðin auglýst forval vegna nýrrar Ölfusárbrúar við Selfoss.
Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá myndir af því hvernig þessi kafli Reykjanesbrautar mun líta út eftir breikkun en hann er sá síðasti sem eftir er að tvöfalda milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur. Yfirlitsmynd af framkvæmdasvæðinu.Vegagerðin Það átti reyndar að bjóða út þennan 5,6 kílómetra langa kafla í fyrra en þá fékk Vegagerðin ekki fjármagn. Einnig hefur verkið stækkað síðan þá, að sögn verkefnisstjórans Jóns Heiðars Gestssonar. Jón Heiðar Gestsson er verkefnisstjóri Reykjanesbrautar hjá Vegagerðinni.Egill Aðalsteinsson „Við fengum allavega fé í þetta núna enda gríðarleg pressa á þessu verkefni út af ýmsu, öryggismálum, og hérna er alþjóðaflugvöllur. Og við vitum nú hvernig síðasti vetur var. Það var ýmislegt í gangi þar varðandi stopp á Reykjanesbrautinni, sem hefði kannski verið hægt að koma í veg fyrir hefði þetta verið búið,“ segir Jón Heiðar. Tvöfölduð Reykjanesbraut við Straumsvík.Vegagerðin Og það var annað stórverk auglýst hjá Vegagerðinni, ný Ölfusárbrú. „Það er forval. Þannig að það er ekki búið að velja verktaka í því útboði. En þetta eru allavega þau tvö verkefni sem eru núna auglýst,“ segir Jón Heiðar. Ný mislæg gatnamót verða við Rauðamel sem tengjast framtíðar byggingarlandi Hafnarfjarðar.Vegagerðin Á Reykjanesbraut verða gerð mislæg gatnamót við Rauðamel til að greiða leið að nýjum framtíðar byggingarsvæðum Hafnarfjarðar. Sömuleiðis verða mislægu gatnamótin við Straumsvík stækkuð og bætt við tengingu að iðnaðarsvæði Hafnarfjarðar við Álhellu en tilboð verða opnuð 4. apríl. Mislægu gatnamótin við Straumsvík verða stækkuð og bætt við vegtengingu að iðnaðarhverfinu við Álhellu. Neðst til hægri má sjá hvar ný undirgöng koma fyrir göngu- og reiðhjólafólk.Vegagerðin „Við munum í framhaldinu fara yfir tilboðin og semja. Þannig að verktaki ætti að geta hafið verkið á framkvæmdastað svona í maí,“ segir verkefnisstjórinn. Þegar til stóð í fyrra að bjóða verkið út var miðað við verklok sumarið 2025. Núna er orðin ársseinkun. Það á ekki að ljúka verkinu fyrr en sumarið 2026, eftir rúm þrjú ár. Vegfarendur munu þó njóta vegbótanna að hluta eitthvað fyrr. Horft frá Krýsuvíkurgatnamótum í átt til Suðurnesja.Vegagerðin „Við reynum að opna megnið af Reykjanesbrautinni árið 2025. En svo er síðasti kaflinn þarna, svona hálfur kílómetri í kringum Straumsvík, hann verður opnaður 30. júní 2026,“ segir Jón Heiðar Gestsson, verkefnisstjóri Reykjanesbrautar hjá Vegagerðinni. Hér má sjá frétt Stöðvar 2: Hér má sjá myndband Vegagerðarinnar af breikkun Reykjanesbrautar:
Vegagerð Samgöngur Hafnarfjörður Umferðaröryggi Keflavíkurflugvöllur Ný Ölfusárbrú Tengdar fréttir Tveir fluttir á bráðadeild eftir árekstur á Reykjanesbraut Reykjanesbraut er lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss sem varð á einbreiða kaflanum sunnan við álverið í Straumsvík í Hafnarfirði á níunda tímanum í morgun. 13. febrúar 2023 08:56 Forval verktaka að hefjast vegna nýrrar Ölfusárbrúar Forval vegna smíði nýrrar Ölfusárbrúar verður auglýst í janúar og er stefnt að því að framkvæmdir hefjist síðla næsta árs. Brúarsmíðin verður þó talsvert seinna á ferðinni en búið var að lofa kjósendum. 30. desember 2022 06:00 Hefðu ekki getað komið í veg fyrir lokun Reykjanesbrautar Starfshópur hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið hægt að koma í veg fyrir að loka varð Reykjanesbraut vegna veðurs í desember. Fleiri tiltækar vinnuvélar hefðu þó getað stytt tímann sem var lokað og betur hefði mátt standa að snjómokstri. Innviðaráðherra mun veita Vegagerðinni heimild til að færa ökutæki við snjómokstur. 23. janúar 2023 11:31 Reyndu allt til að halda veginum opnum við fordæmalausar aðstæður Vegamálastjóri telur að ekki hafi verið hægt að koma í veg fyrir lokun Reykjanesbrautar þegar óveðrið gekk yfir í vikunni en mögulega hefði verið hægt að opna fyrr. Vegagerðin skoðar nú hvort og þá hvað hefði mátt fara betur en um hafi verið að ræða fordæmalausar aðstæður. 22. desember 2022 21:00 Tíu milljarða vantar í fjárlög upp í loforðin í vegagerð Tíu milljarða króna gat er í nýsamþykktum fjárlögum næsta árs til að unnt verði að standa við þau fyrirheit sem gefin voru í samgönguáætlun fyrir síðustu kosningar. Breikkun Suðurlandsvegar í útjaðri Reykjavíkur er meðal þeirra verkefna sem skorin verða niður. 21. desember 2022 10:20 Ljúka breikkun Reykjanesbrautar milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur Langþráð breikkun Reykjanesbrautar milli Straumsvíkur og Hvassahrauns er á leið í útboð og stefnt að því að fimm milljarða króna framkvæmdir hefjist um mitt sumar. Með verkinu lýkur tvöföldun leiðarinnar milli Reykjavíkur og Suðurnesja. 27. apríl 2022 22:22 Breikkun Reykjanesbrautar fer um svæði á náttúruminjaskrá Umhverfismat er hafið vegna breikkunar Reykjanesbrautar framhjá Straumsvík milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns. Tvöfalda á 5,6 kílómetra kafla, úr tveimur akreinum í fjórar, en þetta er eini kaflinn á Reykjanesbrautinni milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur sem ekki hefur verið breikkaður. 6. október 2020 16:05 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Erlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Mennirnir sem létust voru feðgar Erlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Katla skelfur Innlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Fleiri fréttir Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Sjá meira
Tveir fluttir á bráðadeild eftir árekstur á Reykjanesbraut Reykjanesbraut er lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss sem varð á einbreiða kaflanum sunnan við álverið í Straumsvík í Hafnarfirði á níunda tímanum í morgun. 13. febrúar 2023 08:56
Forval verktaka að hefjast vegna nýrrar Ölfusárbrúar Forval vegna smíði nýrrar Ölfusárbrúar verður auglýst í janúar og er stefnt að því að framkvæmdir hefjist síðla næsta árs. Brúarsmíðin verður þó talsvert seinna á ferðinni en búið var að lofa kjósendum. 30. desember 2022 06:00
Hefðu ekki getað komið í veg fyrir lokun Reykjanesbrautar Starfshópur hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið hægt að koma í veg fyrir að loka varð Reykjanesbraut vegna veðurs í desember. Fleiri tiltækar vinnuvélar hefðu þó getað stytt tímann sem var lokað og betur hefði mátt standa að snjómokstri. Innviðaráðherra mun veita Vegagerðinni heimild til að færa ökutæki við snjómokstur. 23. janúar 2023 11:31
Reyndu allt til að halda veginum opnum við fordæmalausar aðstæður Vegamálastjóri telur að ekki hafi verið hægt að koma í veg fyrir lokun Reykjanesbrautar þegar óveðrið gekk yfir í vikunni en mögulega hefði verið hægt að opna fyrr. Vegagerðin skoðar nú hvort og þá hvað hefði mátt fara betur en um hafi verið að ræða fordæmalausar aðstæður. 22. desember 2022 21:00
Tíu milljarða vantar í fjárlög upp í loforðin í vegagerð Tíu milljarða króna gat er í nýsamþykktum fjárlögum næsta árs til að unnt verði að standa við þau fyrirheit sem gefin voru í samgönguáætlun fyrir síðustu kosningar. Breikkun Suðurlandsvegar í útjaðri Reykjavíkur er meðal þeirra verkefna sem skorin verða niður. 21. desember 2022 10:20
Ljúka breikkun Reykjanesbrautar milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur Langþráð breikkun Reykjanesbrautar milli Straumsvíkur og Hvassahrauns er á leið í útboð og stefnt að því að fimm milljarða króna framkvæmdir hefjist um mitt sumar. Með verkinu lýkur tvöföldun leiðarinnar milli Reykjavíkur og Suðurnesja. 27. apríl 2022 22:22
Breikkun Reykjanesbrautar fer um svæði á náttúruminjaskrá Umhverfismat er hafið vegna breikkunar Reykjanesbrautar framhjá Straumsvík milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns. Tvöfalda á 5,6 kílómetra kafla, úr tveimur akreinum í fjórar, en þetta er eini kaflinn á Reykjanesbrautinni milli Hafnarfjarðar og Njarðvíkur sem ekki hefur verið breikkaður. 6. október 2020 16:05