Eignirnar eiga það sameiginlegt að vera allar staðsettar í Garðabæ eða í miðbæ Reykjavíkur.
Dýrasta eignin í myndbandinu er lúxusíbúð við Bryggjugötu 6 í miðbæ Reykjavíkur. Um er að ræða 354 fermetra íbúð sem seldist á 620 milljónir og er fermetraverðið því 1,7 milljón. Þá er önnur íbúð við Bryggjugötu einnig á listanum en sú íbúð seldist á 310 milljónir.
Tekið skal þó fram að einbýlishús við Fjölnisveg 9 er talið hafa selst á 690 milljónir í mars á síðasta ári. Upplýsingar um söluna voru þó ekki gerðar opinberar og rataði húsið því ekki inn á listann sem unninn var út frá opinberum gögnum.
Segir eftirspurn eftir dýrum eignum hafa aukist
Páll segir fasteignamarkaðinn í raun hafa verið tvískiptan á síðasta ári, fyrir og eftir vaxtahækkanir. Fyrri hluta árs hafi söluhraðinn verið meiri og framboð mun minna.
„Seinni hluta árs fór þetta svo í eðlilegra horf eins og ég vil orða það. Sölutíminn lengdist og verðin fóru að ná meira jafnvægi með hækkun vaxta einmitt til að tempra blessuðu verðbólguna sem vonandi mun takast á seinni hluta þessa árs.“
Hann segir eftirspurn eftir dýrum eignum hafa aukist á síðustu árum, þó svo framboðið sé takmarkað.
„Það er enn töluverður hópur þarna úti sem getur keypt sér eign fyrir 200 milljónir og yfir án þess að skuldsetja sig. Það hefur ekki verið mikið framboð fyrir þennan hóp. Til dæmis eru stórar og fallegar „penthouse“ íbúðir takmörkuð auðlind í dag.“

Fasteignamarkaðurinn alls ekki frosinn
Þá segir hann lítið framundan í uppbyggingu á nýjum og stórum einbýlishúsum. Mögulega muni þó rísa nýtt hverfi í Hnoðraholti í Garðabæ þar sem húsin verði í stærri og dýrari kantinum og er hann viss um að eftirspurnin verði mikil.
Páll segir árið 2023 fara þokkalega vel af stað í fasteignabransanum og telur hann líklegt að framboð á eignum eigi eftir að aukast þegar líða tekur á árið.
„Markaðurinn er alls ekki frosinn heldur er þetta orðinn mun eðlilegri markaður þar sem flestir geta keypt og flestir geta selt,“ segir hann.
Hér fyrir neðan má sjá myndbandið þar sem farið er yfir dýrustu fasteignir sem seldust á Íslandi á síðasta ári. Páll segist eiga erfitt með að velja sér uppáhalds eign af listanum en segist þó ekki mundu slá hendinni á móti „penthouse“ íbúð við Bryggjugötu.