Þjálfarinn stökk frá borði skömmu áður en Ísland mætir í heimsókn Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. mars 2023 11:00 Martin Stocklasa og Rafael Gruenenfelder eftir 4-0 tap á Laugardalsvelli. Mario Hommes/Getty Images Martin Stocklasa, fyrrverandi þjálfari landsliðs Liechtenstein, sagði starfi sínu lausu fyrr í þessum mánuði. Það má því segja að Liechtenstein verði þjálfaralaust þegar Ísland mætir í heimsókn í undankeppni EM 2024.
Íslenska karlalandsliðið hefur leik í undankeppni EM 2024 þann 23. mars næstkomandi þegar liðið mætir Bosníu-Hersegóvínu ytra. Þremur dögum síðar ferðast liðið til Liechtenstein og mætir heimamönnum. Gestgjafarnir verða hins vegar án mannsins sem hefur stýrt liðinu frá 2020. Hinn 43 ára gamli Stocklasa stýrði U-21 árs landsliði Liechtenstein árið 2019 og tók svo við A-landsliðinu eftir það. Hann er margreyndur landsliðsmaður sem lék á sínum tíma 113 A-landsleiki fyrir Liechtenstein. Hann sagði starfi sínu lausu til að taka við Vaduz sem leikur í svissnesku deildarkeppninni líkt og sjö önnur lið frá Liechtenstein þar sem ekki er deildarkeppni í landinu. Vaduz situr sem stendur í 9. sæti B-deildarinnar í Svíss. Það fellur því í skaut Austurríkismannsins Rene Pauritsch, yfirmann knattspyrnumála hjá Liechtenstein, að stýra liðinu í komandi landsliðsglugga. Sama dag og Ísland mætir Bosníu-Hersegóvínu verður Liechtenstein í Portúgal. Liechtenstein er í 198. sæti heimslista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, og hefur nú spilað 24 leiki án þess að bera sigur úr býtum. Meðal þess eru 4-0 og 4-1 töp gegn Íslandi í undankeppni HM í Katar sem fram fór undir lok síðasta árs. Landsliðshópur Íslands verður tilkynntur í hádeginu.
Fótbolti Landslið karla í fótbolta EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Fótbolti Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Argentíska landsliðið má búast við sekt Fótbolti Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Íslenski boltinn Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Íslenski boltinn Víkingur Götu - Stjarnan | Garðbæingar í góðum málum Fótbolti Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Fleiri fréttir Áfall fyrir Sverri og íslenska landsliðið Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Elsti leikmaður HM leggur hanskana á hilluna Víkingur Götu - Stjarnan | Garðbæingar í góðum málum Saliba frá í nokkra mánuði Tuchel ætlar að halda áfram hjá Englandi þrátt fyrir gagnrýni Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Jóhannes Kristinn í FH en „klárlega hluti af framtíðinni í Víkinni“ Sædís og Sandra sameinaðar í Köln Arnar tekur undir gagnrýni á Tuchel: „Allt annað en það sem hann talaði um í aðdraganda mótsins“ Argentíska landsliðið má búast við sekt „Vona að ég verði ekki svona heimskur þegar ég hætti“ Englendingar snertu varla boltann eftir markið sitt Adam Ægir mættur til KA Sjáðu Blika fara á toppinn og glæsimark í Eyjum Maður dagsins á HM: Með bikarinn og margt fleira flúrað á kroppinn Frétti af andláti föður síns rétt áður en hann fór í loftið Búið að opna gluggann: Hvað er búið að gerast og hvað þarf að gerast? Dortmund tilkynnir komu Bjarka Hrafns Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Reyndu að brjótast inn í hús Yamals De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ „Mig dreymdi þetta“ „Svekkjandi er rétta orðið“ „Ég er feginn að vinna loksins á heimavelli“ Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ „Miður mín fyrir hönd allra“ Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Uppgjörið: ÍBV - Valur 2-1 | Ferskir Frakkar, eitraðar Eyjakonur og veiklulegur Valur Sjá meira