Bundið slitlag boðið út á vegarkafla á Vatnsnesi Kristján Már Unnarsson skrifar 22. mars 2023 13:03 Frá Vatnsnesvegi við Ánastaðastapa. Þessi kafli fær núna bundið slitlag. Aðsend Íbúar á vestanverðu Vatnsnesi við Húnaflóa sjá núna loksins fram á vegarbætur. Vegagerðin hefur óskað eftir tilboðum í endurbyggingu Vatnsnesvegar á liðlega sjö kílómetra kafla norðan Hvammstanga, frá Kárastöðum að Skarði í Miðfirði.
Vegarkaflinn verður lagður bundnu slitlagi og á verkinu að vera að fullu lokið fyrir 1. september 2024. Tilboðsfrestur rennur út þriðjudaginn 4. apríl næstkomandi. Það þýðir að ef Vegagerðin fær ásættanlegt tilboð ættu framkvæmdir að geta farið á fullt fyrir sumarið. Heimamenn hafa í mörg ár ítrekað kvartað undan ástandi Vatnsnesvegar, ekki síst vegna skólabarna sem þurfi að hossast í skólabílnum eftir holóttum veginum. Þegar langlundargeðið var þrotið hófu þeir hópfjármögnun á Karolinafund fyrir tveimur árum í von um að koma verkinu í gang. Þá sendi umboðsmaður barna bréf til innviðaráðherra í fyrra þar sem ráðherrann var hvattur til að bregðast við ófremdarástandi á Vatnsnesvegi og setja fjármagn í uppbyggingu vegarins. Sagði að ástand vegarins ylli skólabörnum sem ferðuðust um veginn vanlíðan og kvíða og gæti ógnað öryggi þeirra. Frá Vatnsnesvegi norðan Hvammstanga við bæinn Geitafell. Svo langt ná vegarbæturnar ekki að sinni og verður meginhluti Vatnsneshringsins áfram ómalbikaður.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson. Jafnframt hefur verið bent á að umferð ferðamanna hafi snaraukist um Vatnsneshringinn, sem núna er auglýstur sem hluti Norðurstrandarleiðar. Ferðamenn streymi að Illugastöðum í selaskoðun en einnig til að skoða sögusvið morðsins á Natan Ketilssyni, sem leiddi til síðustu aftöku á Íslandi, þegar Agnes og Friðrik voru hálshöggvin. Þetta eru ekki einu vegarbæturnar á hringnum. Á austanverðu nesinu, í Vesturhópi, sunnan við náttúruvættið Hvítserk, er verið að reisa nýja sautján metra langa brú yfir Vesturhópshólaá. Þar er jafnframt verið að leggja nýjan eins kílómetra langan vegarkafla auk þess sem 1,2 kílómetra langur kafli er endurbyggður. Þar kemur því nýtt slitlag á alls 2,2 kílómetra langan kafla. Sumarið 2019 var gerður nýr 1,6 kílómetra vegarkafli við kirkjustaðinn Tjörn og lagður bundnu slitlagi. Vegstæðið var fært og nýr stokkur leysti af gamla einbreiða brú yfir Tjarnará. Brúin var niðri í árgili en vegurinn þar þótti varasamur með blindbeygjum. Þrátt fyrir þessar framkvæmdir verður meginhluti Vatnsneshringsins áfram malarvegur eða um 65 kílómetrar. Síðastliðið haust hvatti oddviti nágrannasveitarfélagsins Húnabyggðar til átaks í uppbyggingu sveitavega í þessari frétt Stöðvar 2:
Vegagerð Samgöngur Húnaþing vestra Byggðamál Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Segir malbikun sveitavega snúast um lífsgæði og endingu á bílum Átaks er þörf til að byggja upp sveitavegi landsins, að mati forseta sveitarstjórnar Húnabyggðar. Hann telur athugandi að slaka á kröfum um umferðarhraða ef það mætti verða til þess að malbik kæmist á fleiri kílómetra. 12. nóvember 2022 23:11 Hvetur ráðherra til að bregðast við ófremdarástandi á Vatnsnesvegi Umboðsmaður barna hefur sent innviðaráðherra bréf þar sem hún hvetur hann til að bregðast við ófremdarástandi á Vatnsnesvegi og setja fjármagn í uppbyggingu vegarins. Ástand vegarins valdi skólabörnum sem ferðist um veginn vanlíðan og kvíða og geti ógnað öryggi þeirra. 25. ágúst 2022 16:53 Börn veikjast við að hristast í skólabíl um Vatnsnesveg Sveitarstjóri Húnaþings vestra segir að skólabörn komi oft veik í skólann á Hvammstanga eftir að hafa hrists í langan tíma í skólabíl, sem keyra Vatnsveginn, sem er nánast ófær vegna lélegs ástands og margra hola. Hópfjármögnunum á Karolinafund er nú hafin fyrir endurbótum á veginum en ætlunin er að safna þar hundrað milljónum króna. 27. nóvember 2021 13:15 800 kílómetra löng ferðamannaleið að verða að veruleika Reiknað er með að ferðamenn geti byrjað að ferðast eftir svokallaðri Norðurstrandaleið í sumar. Markmiðið er að laða ferðamenn að strandlengju Norðurlands. 16. febrúar 2019 20:30 Holóttur vegur veldur börnum kvíða og uppköstum Sum börn á Vatnsnesi þurfa að ferðast um áttatíu kílómetra á dag eftir veginum. Dæmi er um að þau hafi ælt af hristingnum. Íbúi segir þau sýna einkenni þess að vilja ekki fara í skóla vegna þess. 13. október 2018 15:15 Bílveikir skólakrakkar hossast um Húnaþing Foreldrar á Vatnsnesi hafa rætt um að senda börnin ekki í skólann vegna lengri ferðatíma og bílveiki á síversnandi þjóðvegi. Ekki til peningar til að lagfæringa, svarar Vegagerðin skólastjóranum. 8. október 2016 07:00 Lukkast að láta selinn laða að ferðamennina Selasetrið á Hvammstanga er orðið eitt helsta aðdráttarafl héraðsins og nú er verið að innrétta stóran veitingastað á efri hæðinni. 24. febrúar 2015 20:42 Mest lesið Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Fannst heill á húfi Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Erlent „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Innlent Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent Fleiri fréttir Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Biðla til bílstjóra sem leggja á bílastæði kirkjunnar Gjörólíkt gengi frá kosningum Helmingur landsmanna ánægður með störf Höllu Rafmagnslaust í öllum Skagafirði Gerður ráðin skólastjóri Barnaskóla Kársness Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Fjórir greinast að meðaltali á ári með malaríu Markar lok vegferðar sem hófst vegna Kristnihátíðarinnar 2000 Óska eftir myndefni af gröfunni Vendingar í hraðbankamálinu og húsnæði sem fólk vill ekki Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Fannst heill á húfi Síðustu aspirnar á Austurvegi felldar Björguðu ferðamanni sem hafði fest bílinn í aurbleytu við Hagavatn Gæsluvarðhaldskröfu hafnað í hraðbankamálinu „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Verkefni stjórnvalda að takast á við undantekningar í skólakerfinu Leiguverðshækkanir hafa étið upp hækkun húsnæðisbóta Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Meðalvelta á kaupsamning 75,6 milljónir króna Leysigeisla beint að tveimur flugvélum í aðflugi Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Telur handtökuna byggja á slúðri Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Aukið aðhald í ríkisfjármálum og lífsbarátta hvals Sjá meira
Segir malbikun sveitavega snúast um lífsgæði og endingu á bílum Átaks er þörf til að byggja upp sveitavegi landsins, að mati forseta sveitarstjórnar Húnabyggðar. Hann telur athugandi að slaka á kröfum um umferðarhraða ef það mætti verða til þess að malbik kæmist á fleiri kílómetra. 12. nóvember 2022 23:11
Hvetur ráðherra til að bregðast við ófremdarástandi á Vatnsnesvegi Umboðsmaður barna hefur sent innviðaráðherra bréf þar sem hún hvetur hann til að bregðast við ófremdarástandi á Vatnsnesvegi og setja fjármagn í uppbyggingu vegarins. Ástand vegarins valdi skólabörnum sem ferðist um veginn vanlíðan og kvíða og geti ógnað öryggi þeirra. 25. ágúst 2022 16:53
Börn veikjast við að hristast í skólabíl um Vatnsnesveg Sveitarstjóri Húnaþings vestra segir að skólabörn komi oft veik í skólann á Hvammstanga eftir að hafa hrists í langan tíma í skólabíl, sem keyra Vatnsveginn, sem er nánast ófær vegna lélegs ástands og margra hola. Hópfjármögnunum á Karolinafund er nú hafin fyrir endurbótum á veginum en ætlunin er að safna þar hundrað milljónum króna. 27. nóvember 2021 13:15
800 kílómetra löng ferðamannaleið að verða að veruleika Reiknað er með að ferðamenn geti byrjað að ferðast eftir svokallaðri Norðurstrandaleið í sumar. Markmiðið er að laða ferðamenn að strandlengju Norðurlands. 16. febrúar 2019 20:30
Holóttur vegur veldur börnum kvíða og uppköstum Sum börn á Vatnsnesi þurfa að ferðast um áttatíu kílómetra á dag eftir veginum. Dæmi er um að þau hafi ælt af hristingnum. Íbúi segir þau sýna einkenni þess að vilja ekki fara í skóla vegna þess. 13. október 2018 15:15
Bílveikir skólakrakkar hossast um Húnaþing Foreldrar á Vatnsnesi hafa rætt um að senda börnin ekki í skólann vegna lengri ferðatíma og bílveiki á síversnandi þjóðvegi. Ekki til peningar til að lagfæringa, svarar Vegagerðin skólastjóranum. 8. október 2016 07:00
Lukkast að láta selinn laða að ferðamennina Selasetrið á Hvammstanga er orðið eitt helsta aðdráttarafl héraðsins og nú er verið að innrétta stóran veitingastað á efri hæðinni. 24. febrúar 2015 20:42