Innlent

Grunaður um að hafa siglt undir fölsku flaggi á Íslandi

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Fram kemur að rannsókn lögreglu sé á frumstigi og að ástæða sé til að ætla að maðurinn muni torvelda rannsókn málsins verði hann ekki úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Fram kemur að rannsókn lögreglu sé á frumstigi og að ástæða sé til að ætla að maðurinn muni torvelda rannsókn málsins verði hann ekki úrskurðaður í gæsluvarðhald. Vísir/Vilhelm

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að karlmaður skyldi sæta gæsluvarðhaldi og einangrun á meðan á því stendur. Maðurinn er grunaður er um að hafa búið og starfað hér frá árinu 2021 á grundvelli dvalarleyfis á nafni annars manns. Hann er einnig grunaður um skjalafals og peningaþvætti, auk þess að hafa brotið lög um atvinnuréttindi útlendinga og lög um útlendinga. Sterkar vísbendingar eru uppi um að nokkur fjöldi einstaklinga geti mögulega tengst sakarefni málsins.

Maðurinn framvísaði dvalarleyfi sem virðist vera með ljósmynd af honum sjálfum en í gögnum sem framvísað var til að afla dvalarleyfis fyrir þennan einstakling hérlendis gefur á að líta ljósmynd af öðrum manni.

Fram kemur í dómi héraðsdóms að maðurinn hafi einnig haft mikið magn af reiðufé undir höndum við handtöku en hann hafi gefið afar takmarkaðar upplýsingar um þá fjármuni. Þá var hann einnig með umtalsvert magn af umsóknareyðublöðum og gögnum um aðra einstaklinga í fórum sínum.

Tveir aðrir handteknir

Fram kemur í hinum kærða úrskurði að rannsókn lögreglu sé á frumstigi og að ástæða sé til að ætla að maðurinn muni torvelda rannsókn málsins verði hann ekki úrskurðaður í gæsluvarðhald, svo sem með því að hafa áhrif á vitni eða aðra sakborninga eða koma undan gögnum. Því sé nauðsynlegt að hann sæti einangrun á meðan á gæsluvarðhaldinu stendur.

Lögregla hefur lagt hald á töluvert af gögnum og munum, meðal annars fjölda skilríkja sem talin eru fölsuð, sem brýnt er að rannsaka.

Þá er rökstuddur grunur um að aðrir aðilar kunni að tengjast málinu en tveir aðrir einstaklingar hafa verið handteknir í tengslum við rannsókn þess. Fyrir liggur að taka þarf ítarlegri skýrslu af manninum og þeim tveimur einstaklingum sem handteknir voru ásamt honum auk annarra sem kunna að tengjast málinu.

Dómur Landsréttar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×