Haukar upp í annað sætið eftir stórsigur á Breiðabliki Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 29. mars 2023 21:46 Keira Robinson spilaði vel í kvöld. Vísir/Diego Haukar ljúka leik í Subway-deild kvenna í körfubolta í 2. sæti eftir stórsigur á Breiðabliki í kvöld. Á sama tíma tapaði Valur heima fyrir Njarðvík. Þá vann ÍR aðeins sinn þriðja sigur á leiktíðinni þegar Grindavík kom í heimsókn. Eftir hæga byrjun settu Haukar í fluggírinn og pökkuðu Blikum saman með 43 stiga mun. Lokatölur í Ólafssal 88-45 og Haukar enda því Subway-deildina í 2. sæti. Næst á dagskrá er úrslitakeppnin þar sem efstu fjögur liðin; Keflavík, Haukar, Valur og Njarðvík mætast. Haukar dreifðu álaginu vel í kvöld og alls skoruðu fimm leikmenn 10 stig eða meira. Stigahæst var Keira Robinson með 14 stig ásamt því að taka 15 fráköst og gefa 6 stoðsendingar. Þar á eftir kom Elísabeth Ýr Ægisdóttir með 12 stig og 6 fráköst. Í liði Blika skoraði Anna Soffía Lárusdóttir 14 stig. ÍR vann óvæntan eins stigs sigur á Grindavík í kvöld, lokatölur 77-76. Frábær fyrsti leikhluti lagði grunninn að sigrinum en Grindavík vann síðasta fjórðung með 13 stigum. Það dugði þó ekki til í kvöld. ÍR endar tímabilið með aðeins þrjá sigra en tveir af þeim komu í síðustu tveimur umferðum deildarinnar. Greeta Uprus skoraði 19 stig í liði ÍR og tók 8 fráköst. Hjá Grindavík var Danielle Rodriguez stigahæst með 23 stig og 6 fráköst. Keflavík, 24 sigrar – 4 töp Haukar, 22 sigrar – 6 töp Valur, 22 sigrar – 6 töp Njarðvík, 18 sigrar -10 töp Grindavík, 11 sigrar – 17 töp Fjölnir, 8 sigrar – 20 töp Breiðablik, 4 sigrar – 24 töp ÍR, 3 sigrar – 25 töp Körfubolti Subway-deild kvenna Haukar Breiðablik ÍR UMF Grindavík Mest lesið Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira
Eftir hæga byrjun settu Haukar í fluggírinn og pökkuðu Blikum saman með 43 stiga mun. Lokatölur í Ólafssal 88-45 og Haukar enda því Subway-deildina í 2. sæti. Næst á dagskrá er úrslitakeppnin þar sem efstu fjögur liðin; Keflavík, Haukar, Valur og Njarðvík mætast. Haukar dreifðu álaginu vel í kvöld og alls skoruðu fimm leikmenn 10 stig eða meira. Stigahæst var Keira Robinson með 14 stig ásamt því að taka 15 fráköst og gefa 6 stoðsendingar. Þar á eftir kom Elísabeth Ýr Ægisdóttir með 12 stig og 6 fráköst. Í liði Blika skoraði Anna Soffía Lárusdóttir 14 stig. ÍR vann óvæntan eins stigs sigur á Grindavík í kvöld, lokatölur 77-76. Frábær fyrsti leikhluti lagði grunninn að sigrinum en Grindavík vann síðasta fjórðung með 13 stigum. Það dugði þó ekki til í kvöld. ÍR endar tímabilið með aðeins þrjá sigra en tveir af þeim komu í síðustu tveimur umferðum deildarinnar. Greeta Uprus skoraði 19 stig í liði ÍR og tók 8 fráköst. Hjá Grindavík var Danielle Rodriguez stigahæst með 23 stig og 6 fráköst. Keflavík, 24 sigrar – 4 töp Haukar, 22 sigrar – 6 töp Valur, 22 sigrar – 6 töp Njarðvík, 18 sigrar -10 töp Grindavík, 11 sigrar – 17 töp Fjölnir, 8 sigrar – 20 töp Breiðablik, 4 sigrar – 24 töp ÍR, 3 sigrar – 25 töp
Keflavík, 24 sigrar – 4 töp Haukar, 22 sigrar – 6 töp Valur, 22 sigrar – 6 töp Njarðvík, 18 sigrar -10 töp Grindavík, 11 sigrar – 17 töp Fjölnir, 8 sigrar – 20 töp Breiðablik, 4 sigrar – 24 töp ÍR, 3 sigrar – 25 töp
Körfubolti Subway-deild kvenna Haukar Breiðablik ÍR UMF Grindavík Mest lesið Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira