Fyrir þau sem ekki vita snýst málið um skilaboð sem Björgvin og Kristján sendu sín á milli. Kristján greindi frá því á dögunum að hann hafi fengið „niðrandi skilaboð“ frá leikmanni Vals í aðdraganda leiks Vals og PAUC í Evrópudeildinni í handbolta áður en Björgvin steig fram og sagði að hann hafi sent skilaboðin.
Kristján birti svo skilaboðin í vikunni og í kjöldarið ákvað Björgvin að birta öll samskiptin þeirra á milli. Í gær greindi Björgvin svo frá því að hann ætli sér ekki að gefa kost á sér í næsta landsliðsverkefni vegna málsins.
Skilaboðin fyrir leik fóru yfir strikið
Eins og áður segir fór Teddi Ponza yfir málið í síðasta þætti Handkastsins og hann segir að þó honum hafi þótt Björgvin vilja vel með skilaboðasendingunum, en að hann hafi klárlega farið yfir strikið í aðdraganda leiksins.
„Mitt take? Hvar á ég að byrja?“ spurði Teddi áður en hann færði sig yfir í það að kryfja málið.
„Þetta er búið að vera mjög áhugavert allt saman og alltaf þegar maður þarf að fara að greina einhver persónuleg samskipti á milli manna þá er það nú bara þeim sjálfum að þakka að þetta sé komið á þann stað.“
„Fyrir mitt leyti eftir að hafa skoðað þetta þá held ég að Björgvini Páli hafi gengið gott til, eftir að hafa lesið samskiptin þeirra á milli og allt svoleiðis. En náttúrulega það sem skiptir máli eru skilaboðin sem hann sendir þarna daginn fyrir leik.“
„Fyrir mitt leyti skipta hin skilaboðin eiginlega ekki máli. Því að í þessum skilaboðum sem hann sendir daginn fyrir leik - sem hann sendir mótherja sínum daginn fyrir leik - finnst mér hann fara algjörlega yfir strikið.“
Björgvin unnið gott starf í málum andlegra veikinda en skilaboðin ófyrirgefanleg
„Hann talar um að þetta sé vanvirðing við Mikkel Hansen og annað slíkt og þetta finnst mér bara fyrir neðan allar hellur. Sérstaklega í ljósi þess að Björgvin Páll er maður sem hefur unnið gott og göfugt starf í þessum málum og opnað á sín andlegu veikindi og örugglega hjálpað fleirum, bara pottþétt. Þess vegna kemur þetta manni svolítið á óvart og veldur manni vonbrigðum,“ sagði Teddi.
„Björgvin Páll veit alveg að Kristján hefur verið að díla við alla þessa hluti. Kristján hefur opnað sig um það sjálfur þegar hann var hjá Fjölni. Og þegar hann var hjá ÍBV þá var hann að díla við eitthvað sambærilegt hefur maður heyrt og svo áfram í Frakklandi.“
„En fyrir mitt leyti á hann sér engar málsbætur fyrir þessi skilaboð. Og það sem mér finnst Björgvin Páll hafa mátt gera er að bara sýnia smá auðmýkt. Biðja hann afsökunar. Hann hefur beðið hann afsökunar á að hafa verið harðorður í þessum skilaboðum, en mér finnst það ekki ramma inn alvarleika þessara skilaboða í heild sinni,“ sagði Teddi, en umræðuna alla, og þáttinn í heild sinni, má finna í spilaranum hér fyrir neðan. Ræða Tedda um málið hefst eftir tæpar 48 mínútur.