Stálu gríðarlegu magni af klinki Máni Snær Þorláksson skrifar 14. apríl 2023 08:49 Tveir lögregluþjónar virða fyrir sér klinkið á bílastæðinu í Fíladelfíu. Skjáskot/Youtube Þjófar sem brutust inn í flutningabíl sem lagður var yfir nótt á bílastæði í borginni Fíladelfíu í Bandaríkjunum höfðu á brott með sér gríðarlegt magn af klinki sem var verið að geyma í bílnum. Alls var magnið af klinkinu í bílnum sjö hundruð og fimmtíu þúsund dollara virði en talið er að þjófarnir hafi náð að taka um hundrað þúsund dollara virði með sér.
Þjófnaðurinn var tilkynntur til lögreglu um klukkan 6 um morguninn í gær samkvæmt AP. Bílstjóri flutningabílsins hafði sótt klinkið í myntsláttuna í Fíladelfíu síðastliðinn miðvikudag og átti að fara með það til Flórída-ríkis í gær. Þegar lögreglumenn mættu á vettvang voru hundruðir smápeninga á víð og dreif um bílastæðið. Yfirvöld eru ennþá að reyna að staðfesta hversu mikið magn af klinki þjófarnir náðu að taka. Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við málið enn sem komið er. Ekki er enn vitað hvernig þjófunum tókst að taka þetta gríðarlega magn af klinki með sér. Þá er ekki heldur víst hversu margir þjófarnir voru eða hvort þeir hafi vitað að í flutningabílnum væri að finna þetta magn af mynt.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira