Sjóðheita plötusnúðaparið Karen Grétars og Margeir kvöddu veturinn með stæl Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 24. apríl 2023 14:30 Kærustuparið Karen og Margeir kvöddu veturinn með klúbbakvöldi. Einar Snorri Karen Grétars og DJ Margeir eru nýtt plötusnúða kærustupar en þau héldu sitt fyrsta sameiginlega klúbbakvöld síðastliðinn miðvikudag, kvöldið fyrir sumardaginn fyrsta, á skemmtistaðnum Auto. Margt var um manninn og þekkt andlit dönsuðu saman inn í sumarið.
Þetta fyrsta Smirnoff klúbbakvöld plötusnúða parsins ber heitið Hitabylgja og segir í fréttatilkynningu að það hafi heppnast vel. „Hitatölur hækkuðu þegar kvöldið nálgaðist og það var pakkfullt út úr dyrum enda landsmenn greinilega tilbúnir að kveðja veturinn og myrkrið. Þakið ætlaði að rifna af húsinu þegar Daníel Ágúst steig á svið líkt og sólarupprás í gulum jakkafötum og tók syrpu með DJ Margeiri. Svo lokaði hann einnig kvöldinu með laginu Over sem er GusGus klassík og allir tóku undir.“ Daníel Ágúst tryllti lýðinn á Auto með GusGus smellum.Einar Snorri Karen hefur spilað á stórum klúbbum um allan heim en það kom henni á óvart hvernig orkan var á Auto. Hún segir þetta ekki hafa verið síðra en að spila erlendis. „Það var mikið af gömlum vinum sem mættu með góða skapið ásamt mörgum af skólafélögunum úr lögfræðinni. Það gekk mjög vel að spila með Margeiri enda er góð stemning á milli okkar og við erum með mjög svipaðan tónlistarsmekk þannig að það var extra stuð,“ segir Karen. Hún á ekki langt að sækja tónlistaráhugann þar sem hún er dóttir þjóðþekkta tónlistarmannsins Grétars Övarssonar úr Stjórninni. Hér má sjá nokkrar vel valdar myndir frá kvöldinu: Glimmer og gleði á síðasta vetrardeginum.Einar Snorri Fólk var í miklu stuði og alveg tilbúið að bjóða sumarið velkomið.Einar Snorri Daníel Ágúst tók danssett með Margeiri.Einar Snorri Trommarinn og tónlistarmaðurinn Egill Örn Rafnsson var í góðum gír.Einar Snorri Stílistinn Ellen Loftsdóttir dansaði inn í sumarið.Einar Snorri Dansarinn Rebekka Sól Þórarinsdóttir var á svæðinu.Einar Snorri Margeir og Karen vinna vel saman og segja góða stemningu á milli þeirra.Einar Snorri Daníel Ágúst er alltaf eitursvalur.Einar Snorri Dansandi glaðir plötusnúðar.Einar Snorri Að sögn Karenar mætti fólkið með góða skapið, eins og sést hér.Einar Snorri Það var margt um manninn á viðburðinum Hitabylgju.Einar Snorri Þessi fagnaði sumrinu með sínu breiðasta brosi.Einar Snorri Fullt af fólki mætti á viðburðinn Hitabylgju og var stemningin góð að sögn Karenar. Einar Snorri
Tónlist Samkvæmislífið Ástin og lífið Mest lesið Var orðið að spurningu um líf og dauða Lífið Mömmustrákur skýtur uppvakningum ref fyrir rass Gagnrýni Aron Kristinn orðinn pabbi Lífið Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Andlát, fyllerí og fiskur Lífið Komu Balmain Hair Couture í Hagkaup fagnað með glæsilegum viðburði Lífið samstarf Norah Jones: Tíminn stóð í stað þar til ljóskastarinn vakti mann Gagnrýni „Þvílíkur fílingur bara“ Lífið Einbýli í Breiðholti úr smiðju Rutar Kára Lífið Vonbrigði að aðeins tvær konur komi fram á Kótelettunni Lífið Fleiri fréttir Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Ástardúett Stuðmanna í nýjum búning Trúlofuðu sig á sama stað og þau byrjuðu saman Frumflutti nýtt lag á FM957: „Þetta er bara winning lag“ Cave vildi ekki taka þátt í „kjánalegri langloku“ Morrissey gegn „vók“ Tónlistarhátíðinni Lóu aflýst Eltir draumana og þarf að færa fórnir Brian Wilson látinn „Ég var ekki að búast við því að gráta svona“ Keyrði frá Sauðárkróki í Garðabæ fyrir einn gítartíma Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Þykja skuggalega lík Fleetwood Mac „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Heitustu rapparar landsins í eina sæng Sjá meira