Allt undir í Hveragerði Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 24. apríl 2023 13:00 Úr einum af leik liðanna. Skallagrímur Körfubolti Hamar og Skallagrímur mætast í oddaleik um sæti í Subway deild karla í körfubolta á næstu leiktíð. Spennan er gríðarleg fyrir leik kvöldsins en rimma liðanna hefur verið hreint út sagt mögnuð.
Þó úrslitakeppnir Subway deildar karla og kvenna steli fyrirsögnunum þessa dagana þá hefur úrslitakeppni 1. deildarinnar verið hreint út sagt stórbrotin. Stjarnan komst á dögunum upp í Subway deild kvenna eftir sigur á Þór Akureyri í oddaleik. Úrslitaeinvígið í 1. deild karla fór sömu leið en í kvöld tekur Hamar frá Hveragerði á móti Skallagrími í oddaleik um sæti í Subway deild karla á næstu leiktíð. Um er að ræða tvö bæjarfélög með mikla sögu þegar kemur að körfubolta. Það er því svo sannarlega allt undir í kvöld. Það væri grátlegt fyrir Hamar að komast ekki upp um deild eftir að enda í 2. sæti með jafn mörg stig og Álftanes sem sigraði 1. deildina í ár. Skallagrímur endaði í 4. sæti með 14 stigum minna en Hamar. Það er hins vegar ekki spurt að því þegar úrslitakeppnin hefst. Það þarf nefnilega að toppa á réttum tíma til að ná árangri í körfubolta. Einvígi Hamars og Skallagríms hefur verið stórskemmtilegt en eftir jafna fyrstu tvo leiki hefur munurinn verið töluvert meiri í síðustu tveimur leikjum. Skallagrímur tryggði sér oddaleik með 12 stiga sigri á heimavelli – í leik sem rataði í fjölmiðla vegna athæfi stuðningsfólks Skallagríms – aðeins nokkum dögum eftir að Hamar hafði unnið 20 stiga sigur í Hveragerði. Ef marka má leiki liðanna til þessa virðist sem Hamar hafi ákveðið andlegt forskot þar sem liðið hefur unnið báða heimaleiki sína í rimmunni. Hvort það dugi í kvöld verður svo einfaldlega að koma í ljós.
Körfubolti Hamar Skallagrímur Mest lesið Sagði bíl Red Bull vera algjörlega óökuhæfan Formúla 1 Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Körfubolti Senda konurnar í Evrópukeppni en ekki karlana Handbolti Sextán manns í fullu starfi við að þjónusta Ronaldo Fótbolti Þrenna á föstudagskvöldi og háskólagráða á laugardegi Íslenski boltinn Stelpurnar stungu sér til sunds í vatninu Fótbolti Lenti ofan á öðrum bíl í Formúlu 2 Formúla 1 Stelpurnar okkar mættar í paradísina Fótbolti Englendingar Evrópumeistarar eftir framlengdan leik Fótbolti Útskrifuð af sjúkrahúsinu og gæti verið með á EM Fótbolti Fleiri fréttir Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Drakk áfengi í fyrsta sinn eftir hann varð NBA meistari Sjáðu þegar Tyrese Haliburton virðist slíta hásin í oddaleiknum OKC byrjað að undirbúa sigurhátíð sína fyrir leikinn Tom Brady setur LeBron James fyrir ofan Jordan Bara fjögur útilið hafa unnið oddaleik um NBA titilinn Durant var uppi á sviði þegar hann frétti af skiptunum Kevin Durant fer til Houston Rockets Valur fær öflugan leikmann með gríðarlanga lokka Meistararnir fá góðan liðsstyrk að norðan Benedikt í Fjölni Hilmar Smári og Ægir endursemja við Stjörnuna Snýr aftur á Álftanes með hunangið Bragi semur við nýliðana Basile áfram á Króknum „Ætluðum ekki að leyfa þeim að fagna titli á okkar heimavelli“ Pacers knúðu fram oddaleik Sjá meira