Elvar góður í sigri Rytas Smári Jökull Jónsson skrifar 4. maí 2023 17:24 Elvar Már og félagar unnu sigur í dag. Vísir/Vilhelm Elvar Már Friðriksson og félagar hans í Rytas unnu góðan útisigur á botnliði Prienai í litháísku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í dag.
Elvar og félagar voru í heimsókn hjá botnliði Prienai í dag en lið Rytas er í öðru sæti deildarinnar, aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Zalgiris Kaunas eftir að hafa leikið einum leik meira. Leikurinn í dag var þó jafn og spennandi. Jafnt var að loknum fyrsta leikhluta en heimaliðið náði frumkvæðinu í öðrum leikhlutanum og komust mest í tíu stiga forystu í stöðunni 48-38. Rytas lokaði leikhlutanum þó ágætlega og staðan í hálfleik var 48-44. Í síðari hálfleik hélt spennan áfram. Heimaliðið var skrefinu á undan allan þriðja fjórðunginn en gestirnir frá Rytas skoruðu síðustu körfu leikhlutans og komust þá einu stigi yfir 66-65. Rytas byggði síðan ofan á það forskot í lokaleikhlutanum. Þeir komust fljótlega átta stigum yfir og létu forystuna ekki af hendi eftir það. Lokatölur 97-86 og Rytas nú jafnt Zalgiris Kaunas að stigum en hafa leikið tveimur leikjum meira. Elvar Már lék í rúmar þrjátíu mínútur fyrir Rytas í kvöld. Hann skoraði 13 stig, tók 2 fráköst og gaf 4 stoðsendingar. Hann setti niður tvö af sex þriggja stiga skotum og var næst hæstur í plús/mínus tölfræði síns liðs sem segir til um hvernig liðinu gengur þegar hann er inni á vellinum.
Körfubolti Mest lesið „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti 36 ára fyrrum NFL-stjarna látin Sport Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Fleiri fréttir Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Sjá meira