Víða rigning en hiti að fimmtán stigum Atli Ísleifsson skrifar 9. maí 2023 07:21 Gera má ráð fyrir hita að fimmtán stigum í dag. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir hægri, suðlægri átt og að víða verði súld eða rigning í dag. Líkur eru á skúrum sunnantil seinnipartinn, en norðaustanlands rofar sums staðar til og sést þá til sólar. Áfram verður þó þokuloft úti við sjávarsíðuna.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði fremur hlýtt í veðri yfir hádaginn með hita allt að fimmtán stigum þar sem sólar nýtur. „Vestlæg átt og skýjað að mestu á morgun, skúrir á víð og dreif, en bjart með köflum suðaustantil. Við Nýfundnaland er vaxandi lægð á hægri hreyfingu norður, en úrkomusvæði hennar mun líklega koma yfir vestanvert landið á fimmtdagskvöld með tilheyrandi rigningu á þeim slóðum. Helst þó væntanlega þurrt á austurhelmingi landsins til föstudags þegar rignir í flestum landshlutum,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Vestlæg átt, 3-10 m/s, skýjað að mestu og stöku skúrir, hvassast og jafnvel dálítil slydduél norðaustanlands. Hiti frá 3 stigum við norðurströndina, upp í 15 stig á Suðausturlandi. Á fimmtudag: Hægt vaxandi suðaustanátt, 8-15 m/s og fer að rigna á vestanverðu landinu undir kvöld. Hægari og bjart með köflum eystra. Hiti 8 til 13 stig, hlýjast fyrir norðan. Á föstudag: Suðlæg átt, 5-10 m/s og víða rigning, en þurrt að kalla norðaustanlands. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á laugardag: Suðlæg átt, rigning með köflum og áfram fremur milt veður. Á sunnudag: Líkur á að snúist í norðanátt, með rigningu eða slyddu, einkum norðantil og kólnandi veðri. Á mánudag: Líklega breytileg átt, skúrir eða él og fremur svalt.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira