Óvenju kröpp og djúp lægð og gular viðvaranir Atli Ísleifsson skrifar 19. maí 2023 07:15 Fremur hlýtt í veðri í dag, einkum austantil, en kólnar síðan heldur. Má reikna með átta til átján stigum í dag. Vísir/Vilhelm Óvenju kröpp og djúp lægð miðað við árstíma siglir nú norðnorðaustur Grænlandshaf og Grænlandssund næsta sólarhring. Skil lægðarinnar valda allhvassri eða hvassri sunnan- og suðvestanátt með rigningu, en síðar skúrum er þau fara norðaustur yfir landið.
Frá þessu segir á síðu Veðurstofunnar. Þar kemur fram að það verði yfirleitt hægari vindur og úrkomulaust fyrir austan. Fremur hlýtt í veðri í dag, einkum austantil, en kólnar síðan heldur. Má reikna með átta til átján stigum í dag. Gular viðvaranir taka gildi um og eftir hádegi í dag á norðvestanverðu landinu. Veðurstofan „Gular veðurviðvaranir vegna hvassviðris og snarpra vindhviða eru í gildi fyrir norðvestanvert landið. Ferðamenn eru því hvatttir til að aka varlega þar um, einkum ef ekið er með aftanívagna. Ekkert lát virðist á vætutíðinni fyrir sunnan og vestan næstu daga, en ætti þó að haldast þurrt lengst af norðaustanlands.“ Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðvestan 13-18 m/s og skúrir eða dálítil rigning, en hægara og bjartviðri norðaustanlands. Hiti 5 til 14 stig, mildast á Austurlandi. Á sunnudag: Suðlæg átt, 13-18 m/s og talsverð rigning, en úkomuminna á Norður- og Austurlandi. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast norðaustantil. Á mánudag: Suðvestlæg átt og rigning með köflum. Hiti 5 til 11 stig. Á þriðjudag: Gengur í stífa suðvestanátt með rigningu, en úrkomulítið norðaustanlands. Fremur milt veður. Á miðvikudag: Líklega ákveðnar vestanáttir með skúrum eða jafnvel slydduéljum, en þurrviðri austantil. Kólnandi veður. Á fimmtudag: Útlit fyrir suðvestanátt með smá skúrum og hlýnandi veðri.
Veður Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Sjá meira