Kosningin stendur nú yfir hér á Vísi og í kjölfarið kynnum við Iðnaðarmann ársins 2023 sem hlýtur veglegan verðlaunapakka frá Sindra.
Hér fyrir neðan má sjá keppendur og lesa meðmælabréfin sem fylgdu tilnefningum þeirra.

Adam Kári Helgason
Er tilnefndur því hann hefur unun af vinnu sinni bæði sem rafvirki og starfsmaður RSÍ. Hann hefur m.a. hannað kassa til að fara með í grunnskóla til að kynna rafvirkjun.
Simmi Smiður
Er tilnefndur því hann er fagmaður og samfélagsmiðlastjarna.
Einar Jóhann Lárusson
Er tilnefndur því hann er seinasti Bátasmiðurinn til að útskrifast með sveinspróf í bátasmíði á Íslandi, það nám hefur nú verið lagt niður. Hann líka með sveinspróf í húsasmíði og er bóndasonur. Hann hefur smíðað og brasað allan fjandann, á sumrin fer hann á sjó á grásleppu og stundar heyskap. Á haustin sækir hann dollur upp í fjöll og á veturna smíðar hann báta.Hann er bæði í senn algjört ljúfmenni og hinn mesti nagli sem brennur fyrir víðtæk störf sín, sem lætur ekki fótbrot né blóðuga putta halda aftur af sér.

Davíð Einarsson
Er tilnefndur því hann er frábær dúkari.
Tinna Björk Halldórsdóttir
Skrúðgarðyrkjufræðingur og annar eigenda Draumagarða er tilnefnd því hún er toppeintak af vinnuafls dugnaðarforki. Getur og veit ótrúlega margt tengt gróðri og græjum. Hún er súpersnögg að redda málum, gera við og hvaðeina. Náttúrutalent og nörd í þeim allra bezta skilningi.
Harpa Kristjánsdóttir
Er tilnefnd því hún er sprenglærð með bæði sveins- og meistaragráðu í gull- og silfursmíði auk þess sem hún er kennaramenntuð og er að keppast við að ljúka sveinspróf í húsasmíði.Harpa hefur áorkað miklu sem iðnaðarmaðurt.d hefur hún verið meðstofnandi tveggja verslana/verkstæða í Reykjavík og hefur umbreytt og stóraukið námsmöguleika í gullsmíði hérlendis.Hún er einnig mikill hönnuður og hefur tekið þátt í mörgum sýningum og samkeppnum þar sem hún hefur unnið til verðlauna fyrir verk sín. Hún hefur byggt mörg rými og hús allt frá endurgerð í að byggja frá grunni. Um þessar mundir er hún að byggja tvö hús ( af því eitt er ekki nóg ) og hún gengur óhikað í öll verk .

Sandra Ósk Ben Viðarsdóttir
Rafvirki og vélsýra er tilnefnd því hún fleigar og mokar á jafnharðan og hún keyrir upp í námur, og gerir við allt rafmagn sem bilar í flotanum.
Valgerður Helga Ísleifsdóttir
Rafvirki er tilnefnd því að hún er virkilega góð í því sem hún gerir. Hún er ein af 4 stelpum á framkvæmdarsviði innan RARIK og stendur sig virkilega vel þar!
Þetta er í áttunda sinn sem Iðnaðarmaður ársins er valinn hér á Vísi. Árið 2015 var Arnór Davíð Pétursson pípari valinn, 2016 var það Halldóra Þorvarðardóttir blikksmiður, 2017 Auður Linda Sonjudóttir, 2018 Kristín Snorradóttir skrúðgarðyrkjufræðingur, 2019 Malín Frid loftlínurafvirki og 2020 Helgi Ólafsson rafvirki. Iðnaðarmaður ársins 2022 var Hannes Kristinn Eiríksson stálsmiður.