Neytendur

Taka stikkprufur á meðan ný lausn sannar gildi sitt í Bónus

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus sem hefur farið í gegnum ýmsar breytingar undanfarin misseri. Sú stærsta og umdeildasta líklega sú þegar Bónus grísinn tók breytingum.
Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus sem hefur farið í gegnum ýmsar breytingar undanfarin misseri. Sú stærsta og umdeildasta líklega sú þegar Bónus grísinn tók breytingum.

Viðskiptavinir Bónus á Smáratorgi geta nú gripið sér skanna við inngang verslana og skannað vörur beint ofan í poka á leið sinni um verslunina. Nýja sjálfsafgreiðslulausnin heitir Gripið og greitt eins og samnefnd verslun sem lagði upp laupana snemma á öldinni. Helsti samkeppnisaðilinn Krónan hefur í hálft annað ár boðið upp á svipaða lausn þar sem viðskiptavinir geta skannað vörur með notkun apps.

„Þessi lausn á ekki að leysa aðrar afgreiðslulausnir af hólmi, heldur er um að ræða nýja þjónustuleið fyrir viðskiptavini okkar sem kjósa að afgreiða sig sjálfir. Það er mikið hagræði í því fyrir viðskiptavininn að þurfa ekki að meðhöndla sömu vöruna mörgum sinnum heldur skanna beint í pokann – handtökunum fækkar því til muna“, segir Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónus, í tilkynningu.

Þetta sé ein stærsta innleiðing sem Bónus hafi ráðist í.

„Við byrjum í áföngum, prófum þetta fyrst á Smáratorgi og svo detta búðirnar inn ein af annarri næstu mánuði ef viðskiptavinir taka vel í þetta. Þessi lausn þekkist víða í Evrópu og hefur gefið góða raun,“ segir Guðmundur.

Viðskiptavinir verða sér út um sérstakt vildarkort í nýju Bónus appi og fær úthlutað skanna. Í grænmetis- og ávaxtakæli er sérstök snjallvog þar sem vörur eru vigtaðar og viðskiptavinir greiða eftir þyngd en ekki fjölda. Hjá Krónunni er því öfugt farið þar sem greitt er fyrir fjölda.

Viðskiptavinir Bónus sem nýta lausnina fara að lokum á sérstakt greiðslusvæði til að ganga frá greiðslu. Lausnin byggi á trausti milli Bónus og viðskiptavinar, segir Guðmundur, en þó sé fylgt með fólki til öryggis og teknar stikkprufur. 

„Viðskiptavinir geta átt von á því að starfsmaður framkvæmi svokallað þjónustueftirlit þar sem innkaup eru skoðuð að hluta eða í heild á greiðslusvæði. Þjónustueftirlitið á ekki að vera íþyngjandi fyrir viðskiptavini okkar og bara eðlilegur hluti af ferlinu, en afar mikilvægt til að tryggja að lausnin virki eins og hún á að gera.“

Í appinu eiga viðskiptavinir að geta séð vöruframboð, búið til innkaupalista sem hægt er að deila með vinum og vandamönnum og séð greiðslusögu sína á einfaldan hátt.


Tengdar fréttir

Opin allan sólarhringinn og enginn á vaktinni

Fyrsta alsjálfvirka hverfisverslun landsins var opnuð í Garðabæ í morgun. Verslunin verður opin allan sólarhringinn, alla daga ársins. Framkvæmdastjóri segir opnunina marka upprisu gömlu hverfisverslananna.

Bónus lengir opnunar­tíma og gefur grísnum yfir­halningu

Matvörurisinn Bónus hefur gert breytingar á útliti Bónusgríssins og þeirri leturgerð sem notast er við í firmamerki verslananna. Breytingarnar eru gerðar samhliða lengingu á opnunartíma verslana sem taka gildi í dag sem felur meðal annars í sér að sjö Bónusverslanir verða framvegis opnar til klukkan átta á kvöldin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×