Elvar og félagar tryggðu sér sæti í úrslitum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. maí 2023 17:54 Elvar Már og félagar eru á leið í úrslit. Rytas Elvar Már Friðriksson og félagar hans í Rytas Vilnius tryggðu sér í dag sæti í úrslitum litháíska körfuboltans er liðið vann fimm stiga sigur gegn Jonava í þriðju viðureign liðanna, 90-85.
Eins og lokatölurnar gefa til kynna var leikurinn jafn og spennandi frá upphafi til enda og voru það gestirnir í Jonava sem leiddu með sex stigum að loknum fyrsta leikhluta. Gestirnir náðu svo mest tólf stiga forskoti í öðrum leikhluta, en Elvar og félagar snéru taflinu við fyrir hálfleik og staðan var 42-38, Rytas í vil, þegar flautað var til hálfleiks. Heimamenn í Rytas tóku svo öll völ á vellinum í þriðja leikhluta og náðu mest 17 stiga forskoti. Gestirnir klóruðu þó í bakkann og minnkuðu muninn niður í ellefu stig fyrir lokaleikhlutann. Þeir söxuðu svo jafnt og þétt á forskot heimamann í lokaleikhlutanum, en náðu ekki að snúa leiknum sér í hag og Elvar og félagar unnu að lokum fimm stiga sigur, 90-85. Rytas hefur því unnið alla þrjá leiki liðanna í einvíginu og eru því búnir að tryggja sér sæti í úrslitum þar sem liðið mætir annað hvort Zalgiris Kaunas eða Lietkabelis, en fyrrnefnda liðið leiðir það einvígi 2-0. Elvar hafði heldur hægt um sig í leik dagsins miðað við síðasta leik, en hann skoraði þrjú stig í dag og gaf þrjár stoðsendingar.
Körfubolti Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn „Þetta er eins og aftanákeyrsla“ Íslenski boltinn Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira