Innlent

Sjö prósenta hag­vöxtur á fyrsta árs­fjórðungi

Kristinn Haukur Guðnason skrifar
Ekkert lát er á einkaneyslu og ferðaþjónustan drífur hana áfram.
Ekkert lát er á einkaneyslu og ferðaþjónustan drífur hana áfram. Vísir/Vilhelm

Landsframleiðsla jókst um sjö prósent að raungildi á fyrsta ársfjórðungi miðað við sama tíma bili í fyrra. Útflutningur jókst um nærri ellefu prósent.

Þetta kemur í nýjum tölum Hagstofunnar. Segir þar að einkaneysla hafi aukist um 4,9 prósent og samneyslan um 1,7 prósent. Fjármunamyndun dróst hins vegar lítillega saman, eða um 0,1 prósent.

„Utanríkisviðskipti skiluðu jákvæðu framlagi til hagvaxtar en útflutningur jókst um 10,8 % að raungildi, að mestu leyti vegna vaxandi tekna af útfluttri þjónustu,“ segir í tilkynningu Hagstofunnar. „Á innflutningshlið mælist hóflegur vöxtur en jöfnuður vöru- og þjónustuviðskipta mælist -2,5% af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins.“

Ekkert lát á einkaneyslu

Ekkert lát er á einkaneyslunni. Eru það einkum ferðatengdir liðir sem standa að baki aukningunni. Þessi kröftuga neysla og umtalsverðar verðhækkanir eru að mati Hagstofunnar vísbending um að heimilin séu að ganga á sparnað til að láta enda ná saman.

Tölur um ráðstöfunartekjur heimilanna verða birtar um miðjan júní og viku fyrr niðurstöður um fjármál hins opinbera.

24 milljarða halli

Útflutningstekjur hafa vaxið hratt, bæði á undanförnum misserum og síðasta ársfjórðungi. Eru það einkum auknar útflutningstekjur í tengslum við ferðaþjónustu sem standa að baki þróuninni. Jókst þjónustuútflutningur um 24,7 prósent en vöruútflutningur aðeins um 1,1 prósent miðað við fast verðlag.

Vöruinnflutningur dróst saman um 0,2 prósent en þjónustu innflutningur um 12,4 prósent. Samanlagður halli af vöru og þjónustuviðskiptum er 24,2 milljarðar á þessu þriggja mánaða tímabili. Halli á vöruviðskiptum nam 45,7 milljörðum en þjónustujöfnuður var jákvæður upp á 21,4 milljarða.

Fleiri vinna

Birgðir jukust um 38,5 milljarða, aðallega vegna sjávarafurða. Olíubirgðir minnkuðu um nærri 800 milljón króna.

Vinnustundum fjölgaði um 5,6 prósent miðað við sama tímabil í fyrra og starfandi einstaklingum um 5,5 prósent.

„Sé litið til einstakra atvinnugreina kemur í ljós að áberandi mest fjölgun vinnustunda var í byggingarstarfsemi og verslunar-, samgöngum og veitingargreinum á meðan minnst fjölgun vinnustunda var hjá hinu opinbera,“ segir í tilkynningu Hagstofunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×