Oculis klárar hlutafjárútboð upp á nærri sex milljarða
![Oculis var skráð á markað í Bandaríkjunum í mars á þessu ári en markaðsvirði félagsins nam jafnvirði um 55 milljörðum króna þegar útboð þess hófst í byrjun vikunnar.](https://www.visir.is/i/D141AAA87A14B97ADA739053F1A8880230BE6DB4EB37BA38F999F0F3A3627777_713x0.jpg)
Augnlyfjaþróunarfyrirtækið Oculis, sem var stofnað af tveimur íslenskum prófessorum á Íslandi fyrir tuttugu árum, kláraði í gærkvöldi hlutafjárútboð upp á samanlagt 40,25 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 5,7 milljarða króna. Hið nýja hlutafé var selt á rúmlega fjögurra prósenta lægra gengi, eða 11,5 dalir á hlut, en nam síðasta dagslokagengi félagsins fyrir útboðið.