Elvar Már og félagar knúðu fram oddaleik Smári Jökull Jónsson skrifar 8. júní 2023 18:03 Elvar Már og félagar verða að sætta sig við silfrið. Rytas Elvar Már Friðiksson og félagar hans í Rytas náðu að knúa fram oddaleik í einvígi þeirra gegn Zalgiris um litháíska meistaratitilinn í körfubolta. Rytas vann eins stigs sigur í fjórða leik liðanna í dag.
Fyrir leikinn í dag hafði Zalgiris unnið sína tvo leiki á heimavelli og Rytas sömuleiðis unnið sinn heimaleik. Staðan í einvíginu var því 2-1 fyrir Zalgiris sem hafði því unnið sér inn tækifæri á að vinna meistaratitilinn í tuttugasta og fjórða sinn en Rytas varð meistari á síðustu leiktíð. Gestirnir í Zalgiris byrjuðu leikinn í dag betur og komust meðal annars í 21-9 forystu í fyrsta leikhluta. Heimaliðinu gekk illa að saxa á forskotið og gestirnir frá Kaunas voru með 40-32 forystu í leikhléi. Í þriðja leikhluta náðu heimamenn í Rytas hins vegar að komast nær liði Zalgiris. Munurinn varð minnstur tvö stig í stöðunni 47-45 en Zalgiris lauk leihlutanum á þriggja stiga körfu og var með 50-45 forystu fyrir lokafjórðunginn. Þar vantaði ekki dramatíkina. Zalgiris Kaunas komst sjö stigum yfir í stöðunni 63-56 en þá náði Rytas 8-0 kafla og náði forystunni 64-63 í fyrsta sinn í leiknum með um tvær mínútur eftir á klukkunni. Gestirnir rönkuðu þá við sér á ný og skoruðu fimm stig í röð og náðu fjögurra stiga forystu og virtust ætla að tryggja sér titilinn. Lið Rytas var hins vegar sterkara þegar mest var undir. Þeir náðu að minnka muninn í eitt stig og skoruðu síðustu körfu leiksins þegar skammt var eftir. Lokatölur 69-68 og Rytas knýr þar með fram oddaleik um titilinn. Elvar Már lék í rúmar fimmtán mínútur í leiknum í dag. Hann komst ekki á blað, gaf þrjár stoðsendingar og tók eitt frákast.
Körfubolti Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Forseti FIFA móðgaði Ítali Fótbolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Michael Oliver getur ekki dæmt fyrsta leikinn sinn á HM Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira