Segja myndlistaráhuga almennings hafa aukist til muna Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 21. júní 2023 12:31 Helga Björg Kjerúlf og Elísabet Alma Svendsen, eigendur Listvals, fyrir framan nýja húsnæðið. Vísir/Vilhelm Listval Gallery hefur fært sig um set og opnar í nýju húsnæði næsta laugardag að Hverfisgötu 4. Samhliða því verður Listval með opnun á einkasýningu Huldu Vilhjálmsdóttur sem ber heitið „Ég er gegnsæ“. Blaðamaður tók púlsinn á Elísabetu Ölmu Svendsen og Helgu Björg Kjerúlf, eigendum Listvals.
Gróskumikil sena Listval sérhæfir sig meðal annars í myndlistarráðgjöf og listasýningum en Elísabet Alma og Helga Björg segjast sannarlega upplifa það að áhugi almennings á myndlist hafi aukist til muna. „Hinn stafræni heimur hefur klárlega haft þar áhrif, bæði upp á sýnileika og aðgengi að myndlist. Íslenska myndlistarsenan er gróskumikil og er mikið um metnaðarfullar sýningar í galleríum og söfnum. Allar þessar sýningar og miðlun á list vekur upp enn frekari áhuga á myndlist því sífleiri eru farnir að sýna myndlist meiri áhuga en áður.“ View this post on Instagram A post shared by LISTVAL (@listval_) Segja þær að út frá því sé jafnframt auðveldara fyrir fólk að fjárfesta í myndlistinni. „Nú sjáum við myndlist í almennum rýmum í meira mæli svo sem á veitingastöðum og hótelum. Fólk er farið að huga meira að þessum málum.“ Hulda Vilhjálmsdóttir opnar sýninguna Ég er gegnsæ í Listvali að Hverfisgötu 4 á laugardag.Listval Algjör myndlistar stjarna Áður var Listval til húsa bæði á Hólmaslóð og í Hörpu tónlistarhúsi en munu nú sameina starfsemina á Hverfisgötu 4. „Hér erum með planaðar sýningar næsta árið og mjög flott dagskrá framundan, sem byrjar auðvitað á sýningu Huldu. Hulda er algjör stjarna og merkileg listakona. Hún hefur helgað sig málaralistinni frá útskrift og er þekkt fyrir kraftmikil fígúratíf verk en í þetta sinn sýnir hún abstrakt verk sem eru ekki síður heillandi. Hulda vetir fyrir sér gagnsæinu og minnir okkur á að gefa því gaum sem er á milli hlutanna, að velta fyrir okkur mismunandi sjónarhornum og leitast við að sjá veröldina sem allt of oft er ógagnsæ og gruggug.“ Morgundögg eftir Huldu, málað 2023. Er um að ræða hluta af verki á sýningunni Ég er gegnsæ.Listval Nýr farvegur í umboðsmennsku Ásamt ráðgjöf og sýningum ætla þær Elísabet og Helga einnig að vinna sem umboðsaðilar fyrir listamenn ásamt því að annast endursölu listaverka. „Kjarni starfseminnar verður þó sá sami og munum við áfram bjóða upp á úrval af myndlist og stuðla að bættu aðgengi almennings að myndlist. Hér fáum við meira rými fyrir starfsemina og þjónustu við viðskiptavini en við höfðum áður. Við getum við tekið vel á móti gestum, veitt leiðsögn um yfirstandandi sýningar, aðstoðað við myndlistarval og veitt ráðgjöf, allt á einum stað. Húsið er líka á frábærum stað í bænum, mjög sýnilegt og aðgengilegt,“ segja þær að lokum. Opnunin verður frá klukkan 16:00-18:00 næstkomandi laugardag, 24. júní, og eru öll velkomin.
Myndlist Menning Tengdar fréttir Listaverk sem fagna nýju lífi Kristín Morthens vann verk á nýrri sýningu sinni út frá minni tilfinninga fyrir og eftir fæðingu. Sýningin opnaði síðastliðna helgi í NORR11 í samvinnu við Listval og heitir Að snerta uppsprettu. 20. október 2022 13:32 „Alltaf fundist þessar rætur stækka mig sem manneskju“ „Ég hef haft ástríðu fyrir myndlist síðan ég man eftir mér,“ segir listakonan Áslaug Íris Katrín. Blaðamaður tók púlsinn á henni og fékk að heyra nánar frá nústandandi einkasýningum hennar og listræna lífinu. 30. nóvember 2022 16:00 „Myndlist er svo fjölbreytt og víðfeðm“ Listval stendur að myndlistarsýningunni Mens et Manus sem opnaði á síðastliðinn föstudaginn við hátíðlega athöfn í íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn. Er sýningin sú fyrsta í röð sýninga sem Listval mun setja upp í sendiráðinu. Blaðamaður tók púlsinn á Helgu Björg Kjerúlf og Elísabetu Ölmu Svendsen, eigendum og stjórnendum Listvals. 24. maí 2022 12:01 Mest lesið Vestfirski hryllingurinn: „Þetta er það erfiðasta sem ég hef gert“ Bíó og sjónvarp „Auðvitað kom heilmikið rót á mig eftir þetta“ Lífið Fréttatía vikunnar: Þorrinn, gervigreind og háloftin Lífið Þurfti að gegna fjölmörgum hlutverkum samtímis sem aðstandandi Lífið Segir neytendur rænda við skókaup og bendir þeim á mikilvægan límmiða Lífið „Ósmekklegu plastblómin“ ekki frá forsetanum heldur RÚV Lífið Eitt frægasta hús landsins enn á sölu Lífið Jónsi og Una Torfa létu sig ekki vanta á opnunarhátíð Krafts Lífið Fjölgar í „költinu“ hjá Kötu Odds og Þorgerði Lífið Páll Óskar féll í yfirlið og þríkjálkabrotnaði Lífið Fleiri fréttir Hryllingsleikrit um árið án sumars en þó ekki 2024 Margar milljónir í menninguna Halli með nýtt hlaðvarp: Getur loksins verið í augnhæð með fólki Skiluðu tillögum um uppbyggingu Jónasarstofu í Öxnadal Fullt út úr dyrum á sjóðheitri ljósmyndasýningu Ætla að halda Lífskviðuna þrátt fyrir andlát Ásgeirs í nótt Katrín dustar rykið af visku sinni Anna Rós hlaut Ljóðstaf Jóns úr Vör Létu sig ekki vanta á frumsýningu Ungfrú Íslands Bókamarkaðurinn færir sig um set Troðfullt hús og standandi lófaklapp „Persónan Elmar er alls ekki Helgi“ Skrumskæld mynd af Helga Skúla í Vigdísarþáttum Ætlar aldrei aftur til Tenerife: „Þetta er hræðilegur staður“ Metsölulisti bókaútgefenda sé „ómarktækur“ Þetta voru mest seldu bækur ársins 2024 Af hverju er þessi kona á öllum auglýsingaskiltum? Sjá meira
Listaverk sem fagna nýju lífi Kristín Morthens vann verk á nýrri sýningu sinni út frá minni tilfinninga fyrir og eftir fæðingu. Sýningin opnaði síðastliðna helgi í NORR11 í samvinnu við Listval og heitir Að snerta uppsprettu. 20. október 2022 13:32
„Alltaf fundist þessar rætur stækka mig sem manneskju“ „Ég hef haft ástríðu fyrir myndlist síðan ég man eftir mér,“ segir listakonan Áslaug Íris Katrín. Blaðamaður tók púlsinn á henni og fékk að heyra nánar frá nústandandi einkasýningum hennar og listræna lífinu. 30. nóvember 2022 16:00
„Myndlist er svo fjölbreytt og víðfeðm“ Listval stendur að myndlistarsýningunni Mens et Manus sem opnaði á síðastliðinn föstudaginn við hátíðlega athöfn í íslenska sendiráðinu í Kaupmannahöfn. Er sýningin sú fyrsta í röð sýninga sem Listval mun setja upp í sendiráðinu. Blaðamaður tók púlsinn á Helgu Björg Kjerúlf og Elísabetu Ölmu Svendsen, eigendum og stjórnendum Listvals. 24. maí 2022 12:01