White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Magnús Jochum Pálsson skrifar 22. október 2026 14:49 Ólafur Darri, Adam DiMarco og Baltasar Kormákur fara með aðalhlutverk í Hafið er svart. EPA/Vísir/Vilhelm Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri seríu gamanþáttanna White Lotus, hefur bæst í leikhóp kvikmyndarinnar Hafið er svart. Hann mun þar leika á móti Baltasar Kormáki og Ólafi Darra í spennumynd um martraðarkennda sjóferð sem gerist árið 1995 eftir snjóflóðin í Súðavík.
Bransamiðillinn Hollywood Reporter greinir frá ráðningunni. Spennumyndin Hafið er svart (Dark Ocean á ensku) er framleidd af Glassriver en Baldvin Zophoníasson leikstýrir kvikmyndinni og Matthías Tryggvi Haraldsson skrifar handritið. Hafið er Svart fjallar um hinn 28 ára gamla kanadísk-íslenska Hákon (DiMarco) sem er fæddur í Kanada og hefur búið á Íslandi í þrjú ár. Til að framfleyta óléttri kærustu sinni ræður hann sig á togara. Lífið um borð reynist þó mun harðneskjulegra en hann átti von á og þarf Hákon að eiga bæði við erfiðan sjóinn og enn erfiðari áhöfnina. Spennan magnast þegar líf eru lögð að veði og eitrað andrúmsloftið verður kæfandi. Baltasar Kormákur mun leika skipstjórann Andra og Ólafur Darri sjómanninn Hödda. Von er á tilkynningu fleiri leikara á næstunni. Áætlað er að tökur hefjist í mars næstkomandi og munu þær fara fram á Íslandi, við Íslandsstrendur og í kringum kanadísku eyjuna St. John's. Kvikmyndin er samframleiðsla Glassriver og kanadíska framleiðslufyrirtækisins Terminal City Pictures. Baldvin Z er meðal framleiðenda ásamt Guðgeiri Arngrímssyni og Christine Haebler. Þá er klipparinn Valdís Óskarsdóttir einnig hluti af verkefninu sem og kanadíska tónskáldið Anne Nikitin. „Ég hef verið að leita að Hákoni í langan tíma. Hann þurfti að vera einhver sem gæti þrifist sem utangarðarðsmaður í þessum harðneskjulega karlmennskuheimi og leyft áhorfendum að upplifa hann í gegnum sín augu. Adam býr yfir varnarleysi og hlýju sem laðaði mig strax að honum en það býr líka eitthvað óútreiknanlegt undir yfirborðinu, þögull styrkur sem passar akkúrat fyrir Hákon,“ sagði Baldvin um ráðninguna. Hugmynd Baldvins að myndinni kviknaði þegar hann las frétt árið 2015 þar sem fram kom að árið 1995 hafi hópur sjómanna farið í land til að hjálpa til við að finna þá sem höfðu grafist undir í snjóflóðinu fyrir vestan. „Eftir þessa átakanlegu reynslu fóru þeir beint aftur út á sjó og dvöldu þar í mánuð. Þeim var bannað að tala um það og tjá tilfinningar sínar,“ sagði Baldvin við Variety um myndina á síðasta ári.
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Kanada Mest lesið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Fleiri fréttir White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Sjá meira