Icewear Garnlínan slær í gegn Icewear Garn 22. júní 2023 09:18 Alma Ragnarsdóttir er verslunarstjóri Icewear garnbúðarinnar og Andri Már Sigurðsson er verslunarstjóri Icewear útivistarbúðarinnar. Í dag, milli kl. 17-20, verður opnunarhátíð í garnbúðinni þar sem boðið verður upp á léttar veitingar, sértilboð á garni í bland við óvæntan glaðning. Nýlega opnaði Icewear glæsilega garnverslun í Fákafeni 9 í tengslum við nýjustu framleiðslulínu fyrirtækisins, Icewear Garn. „
Garnlínan okkar byggir á áratuga reynslu í prjónahönnun en margir muna eflaust eftir vinsælum vélprjónuðum peysum Icewear frá áttunda og níunda áratug síðustu aldar,“ segir Alma Ragnarsdóttir, verslunarstjóri Icewear Garn. „Til viðbótar við nýja hönnun í bland við yfirfærslu eldri uppskrifta hefur Icewear keypt höfundarrétt uppskrifta frá Lopa og Bandi, en stefnt er að því að gefa út á annað hundrað uppskrifta.“ Nýja Icewear garnverslunin í Fákafeni 9 í Reykjavík er björt og falleg og býður upp á frábært vöruúrval. Icewear Garn býður upp á alls fimmtán gerðir handprjónabands auk fylgihluta. „Icewear garnlínan er afar fjölbreytt með bandi úr ull, hreinni merino ull, alpaca og alpaca silki, bambus, bómul og mohair. Litapallettan er stórglæsileg og hefur vakið mikla hrifningu viðskiptavina enda inniheldur hún milda jarðliti í bland við bjarta og skæra tóna.“ Icewear Garn býður upp á alls fimmtán gerðir handprjónabands auk fylgihluta. Mikil áhersla er lögð á úrval stakra uppskrifta á íslensku, en í búðinni eru fjölmörg prjónuð sýnishorn, peysur og garnprufur, sem sýna mismunandi útfærslur í bandinu segir Alma. „Í versluninni er góð aðstaða til að tylla sér niður, blaða í uppskriftum og sækja sér innblástur í næstu prjónaverkefni. Sjón er sögu ríkari!“ Litapalletta garnsins er stórglæsileg og hefur vakið mikla hrifningu viðskiptavina enda inniheldur hún milda jarðliti í bland við bjarta og skæra tóna. Hún segir starfsfólk garnbúðarinnar vera með sérþekkingu á handprjóni og hekli og aðstoði viðskiptavini við val á verkefnum og garni. „Enda er kjörorð verslunarinnar framúrskarandi þjónusta, fjölbreytt úrval og gott vöruverð.“ Garnverslunin í Fákafeni er björt og rúmgóð en hún stendur við hlið Icewear verslunarinnar sem býður upp á fjölbreytt úrval útivistarfatnaðar. „Þetta eru aðskildar einingar en þó er opið á milli þeirra sem er einstaklega þægilegt fyrir viðskiptavini beggja verslana. Það er stutt síðan Icewear setti á fót nýja barnadeild í Fákafeninu og því má segja að þar megi finna eitthvað fyrir alla fjölskylduna.“ Gott aðgengi er að verslununum og næg bílastæði. Á opnunarhátíðinni í dag fimmtudag verður boðið upp á léttar veitingar, sértilboð á garni í bland við óvænta glaðninga. Verslunin er opin alla daga vikunnar og fram undan eru spennandi viðburðir, til dæmis prjónakaffi, samprjón, námskeið og kynningar segir Alma. „Svo má ekki gleyma opnunarhátíðinni sem haldin verður í versluninni í dag, fimmtudaginn 22. júní. Hún stendur yfir frá kl. 17-20 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar, sértilboð á garni í bland við óvænta glaðninga.“ Nánari upplýsingar á iceweargarn.is.
Verslun Prjónaskapur Mest lesið „Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““ Atvinnulíf Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Viðskipti innlent Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Viðskipti innlent Tvöfaldar tolla á innflutt stál og ál Viðskipti erlent Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Gervigreindin og vaxandi vítahringur nýútskrifaðra Atvinnulíf Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils Viðskipti innlent Sektaðar fyrir að trassa með verðmerkingar á Selfossi Neytendur Fleiri fréttir Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Sjá meira
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent