Skoðun

Bjargvættir

Ingólfur Sverrisson skrifar

Tveir menn stóðu á bryggju og ræddu landsins gagn og nauðsynjar. Tók þá annar þeirra allt í einu undir sig stökk og hrinti hinum fram af bryggjunni. Sá var ósyndur og barðist um á hæl og hnakka í sjónum enda bráður bani búinn ef honum bærist ekki hjálp þegar í stað.

Við þessa hræðilegu sjón tóku að renna tvær grímur á þann sem á bryggjunni stóð þar sem hann var ekki alveg samviskulaus þrátt fyrir allt. Því náði hann í björgunarhring, kastaði honum til félaga síns sem var að súpa síðustu hveljurnar fyrir dauða sinn og skipaði hinum drukknandi manni að grípa í hringinn. Þegar sá sem fallinu olli var búinn að drösla fórnarlambinu við illan leik upp á bryggjuna dreif að fólk og bar lof á bjargvættinn fyrir afrek hans og fórnarlund. Næstu daga var hann síðan hafinn upp til skýja í fjölmiðlum og á mannamótum og þökkuð þessi dásemd öll; hvílíkur maður, hvílíkt afrek. Hvar væri þessi þjóð án slíkra manna sem bjarga meðbræðrum sínum á örlagastundum?

Þegar fórnarlambið komst til heilsu á ný fór það að þrástagast á því við sína nánustu að björgunarmaðurinn hefði sjálfur hrint honum fram af bryggjunni. Ættingjarnir báðu hann lengstra orða að segja engum frá þessu, jafnvel þótt allt væri þetta satt og rétt. Nú væri ríkjandi sú almenna trú í samfélaginu að maðurinn sem bjargaði honum væri af þeirri ástæðu einni hið mesta góðmenni og orðinn landsþekkt hetja. Þessu viðhorfi fengi enginn mannlegur máttur breytt enda ryður einlæg trú staðreyndum til hliðar ef því er að skipta.

Því væri vita vonlaust að fá nokkurn til að trúa frásögn hans úr því sem komið var. Jafn vonlaust eins og að ætla sér að reyna að breyta sannfæringu þeirra sem trúa því að íslenska krónan hafi bjargað okkur frá miklum hörmungum í kjölfar Hrunsins um árið.

Trúarsannfæringin mælir svo fyrir að þessi sama króna hafi verið sannkallaður bjargvættur og guðs gjöf á sama hátt og björgunarmaðurinn á bryggjunni sem hrinti saklausum manni í sjóinn.

Höfundur er eftirlaunaþegi. 




Skoðun

Sjá meira


×