Að viðurkenna mistök án þess að viðurkenna mistök Einar Scheving skrifar 8. ágúst 2023 10:00 Jæja krakkar - Guð almáttugur hefur talað! Hann virðist þó vera farinn að efast ögn um eigið almætti, þótt þjóðin muni líklega seint missa á hann trúna. Hann er jú Guð, bara ögn breyskari - næstum mennskur. Hann - einnig þekktur sem Kári Stefánsson - bendir enda nú á hluti sem margir kollegar hans víða um heim hafa vitað í nokkur ár og reynt með veikum mætti að koma til skila. Hins vegar gættu samfélags- og meginstraumsmiðlar þess að slíkar raddir heyrðust ekki og þegar þær sluppu í gegn þá voru þær stimplaðar sem raddir samsæriskenninga og falsfrétta. Tilskipanir um ritskoðun og þöggun vestra komu m.a.s. beint frá Hvíta húsinu, eins og Twitter skjölin sönnuðu, en miðlarnir hér heima tóku sennilega upp hjá sjálfum sér að vera þægir þegnar yfirvalda, lausir við óþægindin sem fylgir því að sinna hlutverki sínu. Er Kári s.s. kominn í hóp samsæriskenningasmiða, eða sleppur hann fyrir horn þar sem hann er aðeins vitur (afsakðið - vitrari) eftir á? Er Kári kannski, með þessu nýjasta útspili, búinn að gefa læknum, vísindafólki og fjölmiðlum leyfi til að tjá sig á annan máta en leyfst hefur hingað til? Ég meina, ef Kári getur viðurkennt mistök - án þess reyndar að gera það - þá hljóta minni spámenn að mega það líka, eða hvað? Nú segir hann að óþarfi hefði verið að bólusetja fólk undir fimmtugu. Ef frá eru talin börn fram að fimm ára aldri (sem - ótrúlegt en satt, ekki þótti nauðsynlegt að bólusetja), þá erum við að tala um u.þ.b. 250.000 Íslendinga, þ.e. u.þ.b. 65% landsmanna. M.ö.o. - af öllum þeim Íslendingum sem Kári vildi ólmur bólusetja, þá segir hann nú að 2/3 þeirra hefðu ekki þurft þessa bólusetningu. Ef þessi afgerandi meirihluti Íslendinga hefði haft tök á því að fara eftir ráðleggingum ritskoðaðra og ófrægðra kollega Kára um heim allan (eða getað þegið ráð Kára sjálfs núna), væru þeir þá allir drullusokkar, eins og hann kallaði óbólusetta á sínum tíma? „En ég varð ekki var við neitt offors þegar það kom að fólki sem hafði aðra skoðun,“ segir maðurinn sem lét hafa eftir sér í viðtölum að færa mætti „rök fyrir því að koma eigi þeirri skyldu á að þeir einstaklingar sem ekki vilja láta bólusetja sig verði skikkaðir í sóttkví að eilífu.“ - enda drullusokkar. Talandi um drullu - þegar búið er að drulla upp á bak, þá er ósköp eðlilegt að reynt sé að skýla sér á bak við fordæmalausa tíma og að við vissum ekki betur. Þetta höfum við séð trekk í trekk í mannkynssögunni. Kári segir: „Þegar þessi faraldur varð raunveruleiki fyrir okkur hér uppi á Íslandi í mars árið 2020 þá leit þetta út fyrir að vera fyrsti kafli í sögunni um útrýmingu mannkyns.“ Útrýmingu mannkyns? Sjitturinn! En Kári vissi auðvitað betur, enda reiknaði hans eigið teymi það m.a.s. út í sama mánuði að dánartíðnin væri aðeins 0,3% (þótt hún væri auðvitað mun minni í raun). Af hverju skyldi Kári nú vera að opna á umræðuna (þótt hann hefði auðvitað degi seinna reynt að draga í land)? Skyldi það kannski vera vegna þess að óumdeilanlegt er að Covid bóluefnin eru að valda gríðarlegu heilsutjóni um heim allan, að ekki sé minnst á gagnsleysi þeirra? Nýleg svissnesk rannsókn (af aragrúa vísindarannsókna) sýnir að 1 af hverjum 35 þátttakendum fengu einkenni hjartavöðvabólgu. Kári talar um verulega óalgengar aukaverkanir, en flestir læknar væru væntanlega sammála um að tæplega 3% líkur á mjög alvarlegri aukaverkun vegna lyfs séu allt annað en litlar. En eins og áður sagði þá var Kári snöggur að draga í land og segir að þrátt fyrir allt sem hann viti núna að hann myndi fara eins að ef sambærilegur faraldur myndi skella á. Ég spyr því alla sómakæra landsmenn hvernig þeir ætla að bregðast við næst þegar Kári, eða einhver annar með álíka kröftugt gjallarhorn og marga aðdáendur, ætlar að ráðskast með heilsu og hag þjóðarinnar – og það jafnvel með hatursorðræðu sem hvetur til útskúfunar minnihlutahóps? Ætlum við alltaf að bíða þangað til óhætt er að líta í baksýnisspegilinn? Höfundur er tónlistarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Mest lesið Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Skoðun Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar