Kóróna og laglína Prins Póló á nýrri treyju Víkings Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 8. ágúst 2023 15:19 Börn Prins Póló og Berglindar Häsler í treyjunni. Elísa Egilsdóttir Häsler, Hrólfur Svavarsson Häsler og Aldís Svavarsdóttir Häsler Berglaug Petra Garðarsdóttir Ný góðgerðartreyja Víkings í samstarfi við hönnuðinn Hildi Yeoman heiðrar minningu tónlistarmannsins Svavars Péturs Eysteinssonar, Prins Póló, sem lést langt fyrir aldur fram í september í fyrra eftir baráttu við krabbamein. Allur ágóði sölunnar rennur til Ljóssins. „
Í hálsmáli treyjunnar stendur: Nú! er góður tími. Línan var valin af fjölskyldu Svavars Péturs og vísar í lag hans sem ber það heiti. Þá er kóróna Prins Póló staðsett fyrir ofan Víkingsmerkið á treyjunni þar sem venjulega er stjarna,“ segir í tilkynningu frá Víking um málefnið. Börn Prins Póló í Víking „Hugmyndin fæddist í haust þegar pælingar fóru af stað varðandi góðgerðartreyju. Nafn Prins Póló kom fljótlega upp en hann á börn sem æfa í Víking, það var því tenging sem við við vildum skoða. Í kjölfarið höfðum við samband við eiginkonu tónlistarmannsins, Berglindi Häsler, sem leist vel á samstarfið,“ segir Halldór Smári Sigurðsson leikmaður Víkings, hugmyndasmiður og verkefnistjóri verkefnisins sem leitaði leiða um samstarf við hönnuð sem væri einstök og ótengd knattspyrnu. „Hildur Yeoman var efst á blaði hjá mér. Í fyrsta lagi finnst mér geggjað að hún hanni eingöngu kvenmannsföt, auk þess eru mynstrin og grafíkin í flíkunum hennar ótrúlega falleg. Við vorum viss um að þau myndu sóma sér vel á treyju,“ bætir hann við. Leikmenn meistaflokks Víkings.Berglaug Petra Garðarsdóttir Treyjan er sannkallað listaverk.Berglaug Petra Garðarsdóttir Fjölskyldan valdi Ljósið Þá kemur fram að fjölskylda Svavars lagði til að ágóði verkefnisins færi til Ljóssins, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess. Treyjan kostar 15.900 krónur og fer í sölu þann 10. ágúst. Salan hefst í vefverslun Víkings sem opnar á miðnætti á morgun og í verslun Hildar Yeoman á Laugavegi 7 frá klukkan 17 til 19. Þá kemur fram að karla- og kvennalið Víkings munu spila einn leik í treyjunni og jafnframt mun kvennaliðið hita upp í treyjunni fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Breiðablik þann 11. ágúst næstkomandi. Á meðfylgjandi myndum má sjá listamenn klæðast treyjunni ásamt leikmönnum meistaflokka Víkings. Leikmenn meistaraflokka Víkings, þau Birnir Snær Ingason, Logi Tómasson, Nadía Atladóttir og Linda Líf Boama. Þá lék tónlistarmaðurinn Patrik Atlason þekktur sem Prettyboitjokkó með Víkingi í gegnum alla yngri flokkana og meistaraflokki.Berglaug Petra Garðarsdóttir Nadía í kjól sambærilegum treyjunni.Berglaug Petra Garðarsdóttir Einvalalið fagfólks á bakvið tjöldin Fjöldi fólks kom að verkefninu en þar má nefna Guðjón Guðmundsson, Sverrir Geirdal, sem jafnframt hannaði logo verkefnisins og Guðmundur Auðunsson. Berglaug Petra Garðarsdóttir sá um ljósmyndun og Hulda Halldóra Tryggvadóttir um stíliseringu. Þá hannaði Kristófer Karl Jensson og útbjó efni á samfélgsmiðlum og borgarskjám. Tónlistarkonan GDRN.Berglaug Petra Garðarsdóttir Auðunn Blöndal og Ragga Gísla ánægð með treyjuna.Berglaug Petra Garðarsdóttir Láta gott að sér leiða Þetta er ekk í fyrsta sinn sem Víkingur, Hildur Yeoman og Prins Póló koma að því að styrkja góð málefni. Frá árinu 2021 hafa Víkingur og þátttakendur á Hamingjumóti Petit látið gott af sér leiða. Fyrsta árið var Umhyggja, félag langveikra barna, styrkt með milljón króna framlagi. Árið 2022 hélt félagið áfram og styrkti Barnaspítala Hringsins um sömu fjárhæð. Í ár mun félagið styrkja Ljónshjarta, sem eru samtök til stuðnings fólki sem misst hefur maka og börnum sem misst hafa foreldri. Útlit er fyrir að upphæðin verði sú sama og undanfarin ár. Með þessu framtaki vill Víkingur halda áfram að láta gott af sér leiða og stuðla að skemmtilegra og hamingjusamara samfélagi. Leikmenn meistaraflokka Víkings.Berglaug Petra Garðarsdóttir
Víkingur Reykjavík Hjálparstarf Tíska og hönnun Tengdar fréttir Hinstu skilaboðin voru þau að hafa áfram gaman „Ég held að þetta verði ógleymanlegt kvöld,“ segir Berglind Häsler, ekkja Svavars Péturs Eysteinssonar heitins, jafnan þekktur sem ástsæli listamaðurinn Prins Póló. Berglind, Björn Kristjánsson og Benni Hemm Hemm eru í listrænni stjórn Havarí og standa fyrir Hátíð hirðarinnar, stórum minningartónleikum fyrir Svavar Pétur á afmælisdegi hans 26. apríl næstkomandi. Blaðamaður ræddi við Berglindi. 2. apríl 2023 07:00 „Genginn er nú okkar dáðasti darlingur“ Fjöllistamaðurinn Svavar Pétur Eysteinsson, sem betur var þekktur undir listamannsnafninu Prins Póló, var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag. 20. október 2022 18:16 Landsmenn minnast Prins Póló Samúðarkveðjum og minningum sem tileinkaðar eru tónlistarmanninum Svavari Pétri Eysteinssyni, betur þekktum sem Prins Póló, hafa fyllt samfélagsmiðla í dag eftir að fregnir bárust af andláti hans. Svavar lést 45 ára eftir baráttu við krabbamein. 29. september 2022 22:32 Svavar Pétur er látinn Svavar Pétur Eysteinsson, tónlistarmaður sem gekk undir listamannsnafninu Prins Póló, er látinn, 45 ára að aldri. 29. september 2022 16:06 Mest lesið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Lífið samstarf Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Fleiri fréttir Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Sjá meira
Hinstu skilaboðin voru þau að hafa áfram gaman „Ég held að þetta verði ógleymanlegt kvöld,“ segir Berglind Häsler, ekkja Svavars Péturs Eysteinssonar heitins, jafnan þekktur sem ástsæli listamaðurinn Prins Póló. Berglind, Björn Kristjánsson og Benni Hemm Hemm eru í listrænni stjórn Havarí og standa fyrir Hátíð hirðarinnar, stórum minningartónleikum fyrir Svavar Pétur á afmælisdegi hans 26. apríl næstkomandi. Blaðamaður ræddi við Berglindi. 2. apríl 2023 07:00
„Genginn er nú okkar dáðasti darlingur“ Fjöllistamaðurinn Svavar Pétur Eysteinsson, sem betur var þekktur undir listamannsnafninu Prins Póló, var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag. 20. október 2022 18:16
Landsmenn minnast Prins Póló Samúðarkveðjum og minningum sem tileinkaðar eru tónlistarmanninum Svavari Pétri Eysteinssyni, betur þekktum sem Prins Póló, hafa fyllt samfélagsmiðla í dag eftir að fregnir bárust af andláti hans. Svavar lést 45 ára eftir baráttu við krabbamein. 29. september 2022 22:32
Svavar Pétur er látinn Svavar Pétur Eysteinsson, tónlistarmaður sem gekk undir listamannsnafninu Prins Póló, er látinn, 45 ára að aldri. 29. september 2022 16:06