Frumsýning á Vísi: Bráðfyndin stikla úr Heimaleiknum Boði Logason skrifar 15. ágúst 2023 11:00 Myndin verður frumsýnd 16. september í Bíó Paradís, sama dag og úrslitaleikur Mjólkurbikars karla fer fram. samsett Ný íslensk bíómynd, Heimaleikurinn, verður frumsýnd í Bíó Paradís 16. september næstkomandi. Vísir frumsýnir bráðfyndna stiklu úr myndinni.
Klippa: Heimaleikurinn - stikla Myndin er gamansöm íþróttaheimildarmynd sem fjallar um tilraun Kára Viðarssonar til að klára misheppnað verkefni föður síns: Að safna í lið af misgóðum heimamönnum til að spila langþráðan vígsluleik á ónotuðum fótboltavelli sem hann lét byggja á Hellissandi fyrir 25 árum. Kári tileinkar sér þjálfunarspeki föður síns sem trúði á það að allir sem vildu taka þátt fengju að spila, óháð getu, aldri og kyni. Liðið vex og UMF Reynir Hellissandi verður að samfélagsverkefni í þorpinu en hópurinn skartar meðal annars gömlum sjómönnum, óhörðnuðum unglingum, feðgum og þriggja barna móður, Freydísi Bjarnadóttur. Myndin vann Einarinn, áhorfendaverðlaun Skjaldborgar 2023, og viðbrögðin við myndinni voru frábær, að sögn kunnugra hefur sjaldan eða aldrei verið jafn mikil stemning í Skjaldborgarbíó. Leikstjórn er í höndum Smára Gunnarssonar og Loga Sigursveinssonar en þetta er fyrsta mynd þeirra í fullri lengd. Framleiðendur Heimaleiksins eru Stephanie Thorpe, Elfar Aðalsteins, Heather Millard og Freyja Kristinsdóttir.
Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Snæfellsbær Mest lesið Einn frægasti köttur landsins sló í gegn á dögunum Lífið Aðeins þrír dagar liðnir og Bergur biður um hjálp Lífið Girnileg pizzaloka sem þú verður að prófa! Lífið samstarf Emúinn í dyragættinni reyndist eiga heima á Drunk Rabbit Lífið Katrín og Þorgerður gáfu syninum nafn Lífið Próteinbollur að hætti Gumma kíró Lífið Áslaug Arna kom sér fyrir á innan við viku Lífið „Best að vera allsber úti í náttúrunni“ Tíska og hönnun „Pabbi minn vakir yfir mér“ Lífið Barbie dúkka með sykursýki týpu eitt Lífið Fleiri fréttir Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Grindavík sigursæl erlendis Skapandi sumarstarf varð að þætti á laugardagskvöldum á RÚV Næsti Bond undir þrítugu og þrír efstir á blaði Villeneuve leikstýrir næstu mynd um James Bond Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Amatörar, hvalfirskur bóndi og barátta við borgina verðlaunuð Sjá meira