Enginn gosórói mælst á svæðinu Bjarki Sigurðsson skrifar 14. ágúst 2023 11:18 Jarðskjálftamælir á Reykjanesskaga. Vísir/Vilhelm Hægt hefur á öflugri skjálftahrinu sem hófst í gærkvöldi suðvestur af Reykjanesskaga. Allt bendir til þess að um hefðbundna skjálftavirkni sé að ræða og hefur enginn gosórói mælst á svæðinu.
Skjálftahrinan hófst klukkan rúmlega hálf átta í gærkvöldi og mældist stærsti skjálftinn 4,5 að stærð. Það hægði á hrinunni snemma í morgun en síðan þá hefur hún tekið örlítið við sér. Hún er þó ekki jafn kraftmikil og hún var í gærkvöldi. Að sögn Lovísu Mjallar Guðmundsdóttur, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofunni, er algengt að hrinur með stórum skjálftum verði á þessu svæði suðvestur af Reykjanesskaga. „Það hafa verið hrinur þarna, síðast 2022. Þá var 4,4 að stærð stærsti skjálftinn. Svo aftur 2019, þá var 4,7 og 2015 4,8. Þannig þetta er þekkt á þessu svæði og verður nokkuð reglulega,“ segir Lovísa. Á svæðinu eru flekaskil og því er það hreyfing þar á milli sem veldur hrinunni. Lovísa segir allt benda til að virknin sé nokkuð hefðbundin í þetta sinn. Ekki séu miklar líkur á eldgosi á svæðinu. „Það er alltaf möguleiki að það geti komið fyrir en eins og staðan er núna lítur þetta út fyrir að vera hefðbundin skjálftavirkni. Það er engin órói eða nein önnur merki sem við sjáum. En við bara fylgjumst alltaf vel með,“ segir Lovísa.
Eldgos og jarðhræringar Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Innlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Innlent Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Erlent Fleiri fréttir Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Brikk lokað í óákveðinn tíma Skakkur á rafskútu 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Sjá meira