Skýjað vestantil og smávæta af og til Atli Ísleifsson skrifar 15. ágúst 2023 07:13 Spáð er heldur meiri úrkomu vestantil á morgun og mun þá þykkna upp fyrir austan. Vísir/Vilhelm Suðvestlæg átt verður ríkjandi í dag og á morgun og verður því skýjað að mestu vestantil á landinu með smávætu af og til.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði víða bjart fyrir austan. Hiti á landinu verði víða á bilinu tólf til tuttugu stig, hlýjast austanlands. Spáð er heldur meiri úrkomu vestantil á morgun og mun þá þykkna upp fyrir austan. „Víðáttumikil lægð mun svo myndast lang suður í hafi seinni hluta vikunnar og mun hún stjórna veðrinu hjá okkur fram yfir næstu helgi og beina til okkar hlýjum og rökum loftmassa. Austlægar áttir verða þá ríkjandi með súld eða rigning aðallega fyrir austan,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, skýjað og dálítil væta öðru hverju, en þurrt norðaustanlands og bjart framan af. Þokubakkar við norðausturströndina. Hiti 11 til 20 stig, hlýjast á Austurlandi. Á fimmtudag: Suðaustlæg átt 3-10 en 10-15 syðst um kvöldið. Rigning sunnan- og vestanlands, en yfirleitt þurrt norðaustanlands. Hiti breytist lítið. Á föstudag: Austlæg átt, 5-13, en 13-18 syðst. Rigning, en þurrt norðaustantil. Hiti 11 til 21 stig, hlýjast norðaustanlands. Á laugardag: Ákveðin austanátt, skýjað að mestu og úrkomulítið austanlands, en annars bjart með köflum. Hiti 9 til 19 stig, svalast austanlands. Á sunnudag og mánudag: Útlit fyrir austlæga átt. Rigning eða súld, en skýjað með köflum dálítil væta sums staðar vestanlands. Áfram hlýtt í veðri.
Veður Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Fleiri fréttir Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Sjá meira