Hægviðri í dag en von á fyrstu haustlægðinni á morgun Atli Ísleifsson skrifar 31. ágúst 2023 07:17 Veðurfræðingur á vakt segir að segja megi að von sé á fyrstu haustlægð landsins á morgun. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir að hægviðri víðast hvar í dag en suðaustan fimm til tíu metrar á sekúndu með suðvesturströndinni. Skýjað verður með köflum, en léttir til norðan- og austanlands er líður á daginn.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu tíu til sautján stig í dag. Veðurfræðingur á vakt segir að segja megi að von sé á fyrstu haustlægð landsins á morgun. Hitaskil myndist þegar kalt loft mæti heitu yfir Grænlandi, og gangi lægðin yfir landið annað kvöld. Gular viðvaranir taka þá gildi fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland og Faxaflóa og gilda fram á laugardag, en gert er ráð fyrir hvassviðri eða stormi með vindi allt að 23 metrum á sekúndu í þessum landshlutum. Mikilvægt er því að fólk sé viðbúið og hugi að lausamunum og einnig er varað við því að fólk sé á ferð með aftanívagna sem taka á sig mikinn vind þegar veðrið er sem verst. Veðurspár verða endurmetnar þegar líður á daginn. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Vaxandi suðaustanátt, 15-20 m/s með rigningu undir kvöld, en hægari og þurrt norðaustantil. Hiti 10 til 16 stig. Bætir í vind og úrkomu seint um kvöldið. Á laugardag: Sunnan og suðvestan 10-18 m/s með rigningu, talsverðri á köflum. Skúrir seinnipartinn, en styttir upp norðaustantil. Hiti 12 til 18 stig yfir daginn. Á sunnudag: Ákveðin sunnanátt með rigningu, en úrkomulítið fyrir norðan og austan. Hiti 8 til 14 stig. Á mánudag: Suðvestanátt og skúrir, en þurrt að mestu norðan- og austanlands. Hiti 9 til 14 stig. Á þriðjudag: Suðlæg átt og skýjað með lítilsháttar vætu vestanlands, en bjartviðri fyrir austan. Á miðvikudag: Útlit fyrir stífa suðlæga átt með rigningu og hlýnandi veðri.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Sjá meira