Stormur og rigning skella á landið seinni partinn Atli Ísleifsson skrifar 1. september 2023 06:54 Gular viðvaranir taka gildi á vestan- og sunnanverðu á landinu í kvöld. Vísir/RAX Landsmenn mega margir búa sig undir mikið hvassviðri og rigningu sem munu skella á landið síðdegis í dag. Gular viðvaranir taka gildi síðar í dag.
Á vef Veðurstofunnar segir að núna í morgunsárið sé 965 millibara lægð um 400 kílómetra suðvestur af Hvarfi sem fari hratt austnorðaustur til Íslands. Skilin sem fylgi lægðinni komi að suðvesturströnd landsins seinni partinn í dag og þeim fylgi suðaustan stormur og rigning, talsverð á köflum. Hiti á landinu verður á bilinu tíu til sautján stig. Gular viðvaranir taka margar gildi á vestan- og sunnanverðu á landinu klukkan 21 í kvöld og gilda fram á morgun. Veðurstofan „Mikilvægt er að huga að nærumhverfinu, líkur eru á að laufblöð geti rifnað af trjám og eru þau þá fljót að stífla niðurföll. Að sama skapi er stórstreymt í kvöld og í ljósi ölduhæðarspár og vindáttar er líklegt að sjávarstaða verði há áveðurs, eins og t.d. í Grindavík og jafnvel líka í Þorlákshöfn,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Svona lítur spáin út klukkan 22 í kvöld.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Sunnan og suðvestan 10-18 m/s með rigningu fyrripartinn, talsverðri á köflum, hvassast sunnan- og vestanlands. Skúrir síðdegis, en styttir upp norðaustantil. Hiti 10 til 16 stig yfir daginn. Á sunnudag: Suðvestan 8-15 m/s og skúrir, en úrkomulítið norðaustan- og austanlands, hvssast við suðurströndina. Hiti 8 til 14 stig. Á mánudag: Suðvestanátt og skúrir, en úrkomulítið síðdegis. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Suðlæg átt og skýjað með lítilsháttar vætu vestanlands, en bjartviðri fyrir austan. Hlýnar heldur. Á miðvikudag: Suðlæg átt með rigningu, einkum vestantil. Milt í veðri. Á fimmtudag: Útlit fyrir suðlæga átt og vætu, en bjartviðri norðaustantil.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Sjá meira