Sheffield United og Everton skiptu fyrstu stigunum á milli sín Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 2. september 2023 13:30 Abdoulaye Doucoure skoraði fyrra mark Everton í dag. Naomi Baker/Getty Images Það voru gestirnir í Everton sem byrjuðu betur og Abdoulaye Doucoure kom liðinu yfir strax á 14. mínútu, en Cameron Archer svaraði fyrir heimamenn þegar hann kom boltanum í netið eftir stoðsendingu frá Oliver McBurnie tæpum tuttugu mínútum síðar. Archer var svo aftur á ferðinni í uppbótartíma fyrri hálfleiks þegar skot hans fyrir utan vítateig hafnaði í stönginni og fór þaðan í bakið á Jordan Pickford, markverði Everton, og í netið. Staðan orðin 2-1, Sheffield United í vil, og þannig var hún þegar flautað var til hálfleiks. Gestirnir mættu ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og það skilaði sér á 55. mínútu þegar Arnaut Danjuma kom boltanum í netið eftir undirbúning Nathan Patterson. Það reyndist hins vegar síðasta mark leiksins og leiknum lauk því með 2-2 jafntefli og liðin taka því sitt stigið hvort með sér heim. Eins og áður segir voru bæði lið að sækja sitt fyrsta stig á tímabilinu og sitja þau í 16. og 18. sæti deildarinnar eftir fjóra leiki. Sheffield United situr ofar, enda er liðið með betri markatölu. Enski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti