Þjóðverjar unnu Bandaríkin og fara í úrslit í fyrsta sinn Valur Páll Eiríksson skrifar 8. september 2023 15:09 Andreas Obst fór fyrir Þjóðverjum sem eru komnir í úrslit í fyrsta sinn. Getty Þýskaland verður mótherji Serbíu í úrslitaleik heimsmeistaramóts karla í körfubolta á sunnudaginn kemur. Þeir þýsku unnu sterkt lið Bandaríkjanna í undanúrslitum í Manila í dag.
Leikur liðanna var afar fjörlegur og hittnin góð í fyrstu tveimur fjórðungunum. Staðan í hálfleik 60-59 fyrir Bandaríkin en aldrei hafa eins mörg stig verið skoruð í undanúrslitaleik á heimsmeistaramóti. Þjóðverjar voru sterkari aðilinn í þriðja leikhluta og leiddu með tíu stiga mun að honum loknum. Bandaríkin svöruðu fyrir sig í þeim fjórða og úr varð æsispennandi lokakafli. Þeir þýsku höfðu þar betur með tveggja stiga mun, 113-111, og munu þeir því mæta Serbum í úrslitaleik mótsins á sunnudag. Um er að ræða sögulegan árangur hjá þeim þýsku sem hafa aldrei áður komist í úrslit HM en þeir hlutu brons árið 2002. Andreas Obst, leikmaður Bayern Munchen, var stigahæstur á vellinum með 24 stig en honum skammt undan voru liðsfélagar hans í þýska liðinu, NBA-leikmennirnir Franz Wagner (Orlando Magic) með 22 stig og Daniel Theis (Indiana Pacers) með 21 stig. Anthony Edwards úr Minnesota Timberwolves var stigahæstur Bandaríkjamanna með 23 stig.
HM 2023 í körfubolta Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport Fleiri fréttir Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Sjá meira