Innlent

Gjörunnin matvæli í lagi stöku sinnum

Bjarki Sigurðsson skrifar
Heiðdís Snorradóttir er næringafræðingur.
Heiðdís Snorradóttir er næringafræðingur. Vísir/Ívar Fannar

Næringafræðingur segir fólk ekki þurfa að hafa of miklar áhyggjur af áti á svokölluðum gjörunnum matvælum, sem oft eru markaðssett sem heilsuvara. Það sé vissulega betra að borða minna unninn mat - en borði fólk einnig næringarríkt fæði á móti sé ekkert að óttast.

Ekki er allur matur jafn hollur og hann er látinn líta út fyrir að vera. það getur verið vegna þess að hann er það sem kallast gjörunnin matvæli.

Hár blóðþrýstingur

Nýlega birtist stór rannsókn á erlendri grundu um gjörunninn mat. Um er að ræða matvæli sem hafa verið unnin svakalega mikið en undir þann flokk mætti til dæmis setja einhverjar tegundir próteinstykkja, morgunkorns, jógúrt og fleira.

Víðs vegar í Bandaríkjunum og Bretlandi samanstendur allt að áttatíu prósent af mataræði fólks af gjörunnum matvælum. Í rannsókninni er rætt um að gjörunnin matvæli geti hækkað blóðþrýsting fólks og aukið líkur á hjartaáfalli og heilablóðfalli. Þá sé mikið af gjörunnum mat látinn líta út fyrir að vera heilsuvara þrátt fyrir að hann sé það alls ekki.

Klippa: Gjörunnin heilsuvara

Ávaxtastangir ekki bannaðar

Heiðdís Snorradóttir næringarfræðingur segir þó ekki allan gjörunninn mat vera slæman fyrir fólk, til að mynda gjörunninn heilsumatur.

„Maður getur alltaf spurt sig, ef ég er að kaupa mér ávaxtastangir en get borðað ávexti. Þá ætti ég að velja ávexti. Það þýðir samt ekki að ávaxtastangir séu bannaðar. Við missum svolítið af því ef við erum að fá ávaxtastangir í staðinn fyrir ávexti. Líka það að þessi matvæli þau standa illa með okkur. Þannig þau auka ekki á sedduna hjá okkur og þar af leiðandi verðum við fyrr svöng,“ segir Heiðdís.

Hægt að jafna út

Hún segir fólk geta að vissu leyti jafnað átið á gjörunnum matvælum út.

„Ég held að það sé mikilvægt að fólk átti sig á því að ef það er að borða mikið unnin matvæli og næringarríkan mat, þarf ég ekki að hafa neinar áhyggjur af þessu. Stöku pitsa og stöku eitthvað kex og kökur er ekkert mál. Fólk þarf ekki að hafa áhyggjur af því,“ segir Heiðdís. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×