Áfram hvassviðri eða stormur en dregur úr vindi og úrkomu í kvöld Atli Ísleifsson skrifar 19. september 2023 07:19 Þegar líður á daginn hvessir á Suðausturlandi og þá einkum í Öræfum. Vísir/RAX Veðurstofan gerir ráð fyrir norðaustan hvassviðri eða stormi í dag þar sem einna hvassast verður á Vestfjörðum og austast á landinu. Að sama skapi má búast við vindhviðum yfir 40 metra á sekúndu við fjöll.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að talsverð rigning verði á austanverðu landinu, en mun minni úrkoma annars staðar og lengst af þurrt sunnan- og vestanlands. „Þegar líður á daginn hvessir einnig á Suðausturlandi og þá einkum í Öræfum. Dregur talsvert úr vindi og úrkomu seint í kvöld og nótt, en áfram strekkings norðaustanátt á morgun og væta á köflum fyrir norðan og austan. Eins kólnar smám saman og viðbúið að gráni í fjöll þar sem úrkomu gætir. Gular veðurviðvaranir vegna rigningar eru í gildi fyrir Austurland og Austfirði út daginn í dag. Vegna aukinnar hættu á aurskriðum og tjóni á mannvirkjum er í gildi appelsínugul viðvörun fyrir Austfirði til miðnættis,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Norðaustan 10-18 m/s, en hægari með kvöldinu. Lítilsháttar rigning á Norður- og Austurlandi, en annars léttskýjað. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast syðst. Á fimmtudag: Norðlæg átt, 8-15 m/s og smáskúrir eða él, hvassast austast, en bjartviðri sunnan heiða. Hiti 1 til 8 stig yfir daginn, mildast syðst, en líkur á næturfrosti. Á föstudag: Norðankaldi, skúrir eða él fyrir norðan og austan, en annars þurrt að kalla. Svalt í veðri, en mildara syðst. Á laugardag (haustjafndægur): Austlæg eða breytileg átt, skýjað og dálítil væta, einkum sunnan- og vestanlands. Hlýnar dálítið. Á sunnudag: Norðaustanátt og rigning með köflum, en léttskýjað suðvestantil. Hiti 1 til 6 stig. Á mánudag: Útlit fyrir fremur kalda norðanátt. Dálítil él fyrir norðan, væta austast, en bjartviðri sunnan- og vestanlands.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira