Á vef Veðurstofunnar segir að spáð sé suðvestan tíu til fimmtán metrum á sekúndu í dag og rigningu. Má gera ráð fyrir að úrkoman verði talsverð eða mikil suðvestanlands.
Um sexleytið í morgun höfðu þegar mælst 20 millimetra úrkoma á Korpu á höfuðborgarsvæðinu og er gott að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón. Það mun svo rofa til seinnipartinn, fyrst vestanlands og lægir svo heldur um kvöldið.
Hiti verður á bilinu þrjú til tíu stig, hlýjast á Suðausturlandi.
„Svo gengur í norðan 15-25 m/s á morgun, hvassast við norðurströndina og einnig í vindstrengjum á Suðausturlandi síðdegis. Rigning eða slydda um norðanvert landið og jafnvel snjókoma til fjalla. Það verður hins vegar yfirleitt bjart og þurrt sunnan heiða. Hiti á morgun 2 til 8 stig, hlýjast suðaustanlands.
Aðfaranótt miðvikudags hvessir enn á Suðausturlandi og eru líkur á mjög snörpum vindhviðum þar að næturlagi, einkum við og austan Öræfa.
Hægt minnkandi norðanátt á miðvikudag og dregur úr ofankomu fyrir norðan en léttskýjað sunnanlands. Kólnandi veður, hiti nálægt frostmarki norðanlands en allt að 6 stigum við suðurströndina,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á þriðjudag: Gengur í norðan og norðvestan 15-25 m/s, en allt að 30 m/s með mjög snörpum vindhviðum sums staðar á Suðausturlandi síðdegis. Rigning eða slydda, en snjókoma til fjalla. Úrkomulítið sunnan heiða. Hiti 0 til 7 stig, mildast við suðurströndina.
Á miðvikudag: Norðan- og norðvestan 15-23 m/s og slydda eða rigning og síðar snjókoma norðan- og austanlands, en skýjað með köflum í öðrum landshlutum. Dregur talsvert úr vindi og rofar til seinnipartinn en dálítil rigning suðvestantil um kvöldið. Hiti kringum frostmark fyrir norðan en allt að 5 stigum syðst á landinu.
Á fimmtudag: Norðlæg átt 10-18. Rigning á sunnanverðu landinu, en slydda eða snjókoma norðanlands. Bætir í úrkomu norðantil seinnipartinn en styttir upp sunnan heiða. Hiti víða 0 til 4 stig.
Á föstudag: Norðanátt og snjókoma eða slydda, en lengst af þurrt sunnan heiða. Frost 0 til 5 stig en allt að 4 stigum við austur- og suðurströndina.
Á laugardag: Minnkandi norðanátt og dregur úr ofankomu fyrir norðan. Bjart með köflum sunnanlands. Frost um allt land.
Á sunnudag: Útlit fyrir vestlæga átt. Snjókoma og síðan rigning eða slydda með hlýnandi veðri vestantil en þurrt og kalt fyrir austan.