Fótbolti

Maddison: Erum sammála um það hver mín besta staða er

Dagur Lárusson skrifar
James Maddison gegn Ástralíu
James Maddison gegn Ástralíu Vísir/Getty

James Maddison, leikmaður Tottenham og enska landsliðsins, segir að Gareth Southgate sé búinn að finna bestu stöðuna fyrir hann í liðinu.

Maddison hefur farið á kostum í liði Tottenham á tímabilinu en hann hefur gefið stoðsendingu eða skorað í nánast hverjum einasta leik liðsins.

„Við höfum talað saman og hann er sammála því að besta staðan mín er á miðjunni rétt fyrir aftan framherjann, þar spila ég best,“ byrjaði Maddison að segja.

„En jafnvel þegar ég spila vinstra megin þá hef ég frelsið til þess að leita inn á völlinn og spila þar. Ég naut mín í þessum leik þrátt fyrir að áströsku miðjumennirnir gerðu þetta virkilega erfitt fyrir okkar og við áttum erfitt með að finna svæði,“ hélt Maddison áfram.

„En það er það sem mun halda áfram að gerast. Við erum England og við vinnum leiki. Þegar lið koma á völl eins Wembley þá er það alltaf auka hvatning fyrir þau, jafnvel þó um sé að ræða vináttuleik,“ endaði James Maddison á að segja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×