„Sjö barna föður sagt upp eftir 17 ára starf“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 17. október 2023 12:45 Vilhjálmur segir uppsögnina ekki þá fyrstu í boði Norðuráls sem honum sé misboðið yfir. Vísir/Vilhelm Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir að sér sé gjörsamlega misboðið vegna uppsagnar félagsmanns síns sem starfaði í steypuskála hjá Norðuráli. Hann segir að starfsmanninum, sem starfaði í sautján ár hjá fyrirtækinu, hafi verið sagt upp vegna þess að hann hafi talað illa um fyrirtækið og mætt á fjölskylduskemmtun án þess að skrá sig.
Vilhjálmur segir sögu starfsmannsins í færslu á samfélagsmiðlinum Facebook. Hann segist hafa reynt að fá ákvörðuninni hnekkt en að það hafi ekki gengið og því hafi hann ákveðið að segja frá málinu opinberlega. Vilhjálmur segir að ábyrgð atvinnurekenda sé mikil þó upp komi vissulega atvik eða ástæður þar sem nauðsynlegt sé að segja fólki upp. Mótmæli hafi engu skilað „Ástæða þess að ég skrifa þennan pistil er að á laugardagsmorgunn fékk ég hringingu frá félagsmanni mínum sem tjáði mér að honum hefði verið sagt upp störfum hjá Norðuráli. Þessi umræddi starfsmaður hafði unnið í 17 ár hjá Norðuráli og á þessum 17 árum hafði hann hvorki fengið munnlega né skriflega áminningu að eigin sögn. Þessu til viðbótar var hann sjö barna faðir og var því eðlilega að framfleyta afar þungu heimili fjárhagslega.“ Starfsmaðurinn hafi verið kallaður á fund með framkvæmdastjóra steypuskálans og mannauðsstjóra. Þar hafi honum verið tjáð að honum væri sagt upp störfum og að honum bæri að yfirgefa vinnustaðinn. „En hver var ástæðan sem þessum sjö barna föður með 17 ára starfsreynslu var gefin fyrir uppsögninni? Jú ástæðan var að hann var væri að tala illa um fyrirtækið og hafi mætt á fjölskylduskemmtun sem Norðurál hélt án þess að skrá sig! Umræddur starfsmaður mótmælti harðlega á umræddum fundi að hann væri að tala illa um fyrirtækið en það hafði ekki áhrif á uppsögnina sem framkvæmdastjóri steypuskála hafði skellt í andlitið á mínum félagsmanni.“ Hafi allir talað vel um manninn Vilhjálmur segir að alltaf þegar hann fær slíkar uppsagnir inn á sitt borð, sem byggi á svona stórundarlegum forsendum sem að hans mati standist ekki eina einustu skoðun leiti hann sér upplýsinga til að sannreyna hvort frásögn félagsmannsins sé rétt. Hann segist hafa haft samband við samstarfsfélaga mannsins víða í fyrirtækinu til að kanna allar hliðar málsins. „Það er skemmst frá því að segja að allir sem ég talaði við sem hafa starfað með umræddum félagsmanni hjá Norðuráli gáfu honum afar góð meðmæli og vísuðu því algerlega á bug að minn félagsmaður hafi ástundað að tala illa um fyrirtækið. Það vill nú þannig til að þessi umræddi félagsmaður minn hefur oft komið á skrifstofu mína til að ræða um hinn ýmsu kjaramál og réttindi og í öll þau skipti sem hann hefur komið til viðræðna við mig hefur hann aldrei verið að kasta rýrð á fyrirtækið.“ Samstarfsmenn í áfalli Hann segir samstarfsmenn mannsins hafa sagt hann ætíð hafa unnið verk sín af samviskusemi og dugnaði. Þá hafi vaktin sem maðurinn hafi verið á verið í áfalli eftir uppsögnina. „Ekki bara það heldur fékk ég að heyra að mórallinn í steypuskálanum öllum væri við frostmark eftir þessa uppsögn því fólki fannst hún ósanngjörn og algerlega byggð á röngum forsendum. Rétt er að geta þess að minn félagsmaður hefur vegna þess að hann er að reka þungt heimili þurft að taka mikið af aukavöktum til að framfleyta sér og sinni fjölskyldu og hefur því unnið með öllum vakthópum í steypuskálanum.“ Vilhjálmur segir að hann finni til með samstarfsfólki mannsins. Það finni eðlilega fyrir depurð og ótta eftir svona uppsögn. Hann segir uppsögnina óskiljanlega, ósanngjarna og fyrir neðan allar hellur. Það sé með ólíkindum að byggja uppsögn á einhverju sem ekki sé sannleikanum samkvæmt og það eftir að viðkomandi hafi starfað fyrir fyrirtækið í sautján ár. Ekki fyrsta uppsögn Norðuráls sem misbýður Vilhjálmi „Það er ábyrgðarhlutur að vera atvinnurekandi og það þarf að koma fram við starfsmenn ef sanngirni og virðingu þegar svona veigamiklar ákvarðanir eru teknar, enda eru atvinnurekendur að véla með lífsafkomu sinna starfsmanna. Munum að mannauður er hjarta hvers fyrirtækis og uppsagnir sem byggjast á röngum forsendum bera merki þess að verið sé að reka óttastjórnun og eigi að vera öðrum „víti til varnaðar.“ Hann segir slíka mannauðsstefnu aldrei geta endað með öðru en skipsbroti, enda lifi ekkert fyrirtæki af ef ekki væri fyrir dugnað og kraft þeirra sem starfi á gólfinu. Vilhjálmur segir að það sé fólkið sem skapi hagnað fyrirtækja. „Ég reyndi að fá þessari ákvörðun hnekkt en því miður tókst það ekki og því sá ég mig knúinn til að skrifa um þetta mál enda er hlutverk stéttarfélaga að verja atvinnuöryggi og lífsafkomu sinna félagsmanna með kjafti og klóm og það reynum við í Verkalýðsfélagi Akraness ætíð að gera. En mér er gjörsamlega misboðið hvað þessa uppsögn varðar og þetta er alls ekki fyrsta uppsögn í Norðuráli sem mér verður misboðið yfir!“
Akranes Stéttarfélög Vinnumarkaður Hvalfjarðarsveit Mest lesið „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent Valgarð Már er látinn Innlent „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Innlent Íslendingarnir næstum lent í stórslysi vegna alvarlegra mistaka Erlent Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Innlent Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Innlent Mynd af Dorrit með Mette-Marit og Maxwell vekur athygli í Noregi Erlent Trump birti myndband af Obama-hjónum sem öpum Erlent Fleiri fréttir „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sautján ára piltur lést í bílslysi á Miklubraut Opna dyr sínar vegna slyssins á Miklubraut Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð „Eftirlit sveitarfélaga með fósturbörnum er brotið“ Níu Íslendingar um borð í flugvél sem hafnaði úti á grasi Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Fullyrðir að eftirlit með fósturbörnum sé brotið Ekki sé lögboðið eftirlit með fimmtungi fósturbarna Biggi lögga lamaður eftir að ofbeldi var borið upp á hann Vægur dómur fyrir að áreita átta stúlkur: „Mér er slétt sama um aldursmun“ Ragnheiður nýr forseti LUF Snjór á Hellisheiðinni Risa framkvæmd við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi Slysið á Miklubraut „mjög alvarlegt“ og óskað eftir vitnum „Flókið að koma saman framboði með fjóra flokka“ Ölvun og þjófnaðir Sendi rangt skjal á dómarann og nú þarf að flytja málið upp á nýtt Slys á Miklubraut: Einn fluttur á sjúkrahús og einn bíll tjónaður Sjá meira