Hvassviðri á landinu og gular viðvaranir taka gildi í kvöld Atli Ísleifsson skrifar 18. október 2023 07:15 Reikna má með áframhaldandi suðaustan hvassviðri eða stormur á morgun og bætir heldur í úrkomu um sunnan- og vestanvert landið. Vísir/RAX Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði suðaustan hvassviðri á landinu í dag með dálítilli vætu suðvestan og vestantil þar sem verður heldur úrkomumeira suðaustanlands. Gular viðvaranir taka gildi á Faxaflóasvæðinu, Suðurlandi og miðhálenginu í kvöld.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði heldur hægari vindur og bjartviðri norðan heiða. Hiti á landinu verður á bilinu tvö til tólf stig. Það bætir svo í vind á Suður- og Suðvesturlandi í kvöld og taka þá gular viðvaranir taka gildi vegna hvassviðris eða storms. Má þannig búast við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 35 metrum á sekúndu, einkum á Kjalarnesi, við Hafnarfjall, undir Eyjafjöllum og á sunnanverðu Reykjanesi. Gular viðvaranir vegna hvassviðis eða storms taka gildi á landinu í kvöld.Veðurstofan Viðvaranirnar eru í gildi fram á annað kvöld. Áframhaldandi suðaustan hvassviðri eða stormur á morgun og bætir heldur í úrkomu um sunnan- og vestanvert landið. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðaustan 13-23 m/s, hvassast við suðurströndina. Rigning, talsverð suðaustantil, en bjartara og þurrt að kalla norðantil. Hiti 5 til 12 stig. Á föstudag: Suðaustlæg átt, 8-13 m/s, en 13-18 norðaustantil. Rigning, talsverð suðaustanlands, en dregur úr úrkomu um vestan- og norðanvert landið síðdegis. Hiti 6 til 12 stig. Á laugardag: Suðaustlæg átt með rigningu, en bjartviðri fyrir norðan. Hiti 5 til 10 stig. Á sunnudag og mánudag: Hæg austlæg eða breytileg átt og víða dálitlar skúrir. Kólnar í veðri. Á þriðjudag: Útlit fyrir suðlæga átt með rigningu eða slyddu, en bjart norðaustantil.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira