Hlý suðaustanátt en mikil rigning suðaustantil Atli Ísleifsson skrifar 20. október 2023 07:14 Hiti verður á bilinu sex til tólf stig í dag. Vísir/Vilhelm Landsmenn mega eiga von á hlýrri suðaustanátt og þokkalegum blæstri í dag, en þó ekki eins hvössum og var í gær. Veðurstofan spáir að það verði úrkomulítið á Norðurlandi, en annars rigning, einkum sunnantil.
Á Suðausturlandi er gul viðvörun í gildi vegna hennar rigningarinnar og má búast við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum sem auki hættu á flóðum og skriðuföllum og geti valdið tjóni og raskað samgöngum. Hiti verður á bilinu sex til tólf stig. „Lægðin sem stjórnar veðrinu í dag er suðvestur af landinu. Hún hreyfist lítið og er farin að grynnast. Á morgun verður austan og suðaustan kaldi með smáskúrum syðra, en bjart veður norðan heiða. Hiti 3 til 9 stig yfir daginn. Hægur vindur á sunnudag og dálítil rigning eða slydda, en að mestu þurrt um landið austanvert. Heldur svalara,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðaustan og austan 5-13 m/s og dálitlar skúrir, en lengst af bjartviðri á Norðurlandi. Hiti 3 til 9 stig. Hægari síðdegis og kólnar. Á sunnudag: Fremur hæg breytileg átt og dálítil rigning eða slydda, en þurrt að kalla á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti 0 til 6 stig. Á mánudag: Sunnan 3-8 og lítilsháttar væta, en léttskýjað á austanverðu landinu. Hiti 1 til 8 stig yfir daginn. Á þriðjudag og miðvikudag: Austlæg átt og smáskúrir sunnan- og austanlands. Hiti breytist lítið. Á fimmtudag: Norðaustanátt, skýjað með köflum og dálítil rigning eða slydda á Austurlandi.
Veður Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Sjá meira